Páll Valur: „Skammast mín mikið fyrir að svona skuli komið fram við þessi börn“

Páll Valur Björns­son, þing­maður Bjartar fram­tíðar, vakti athygli á stöðu fylgd­ar­lausra barna í ræðu á Alþingi í morgun. Hann telur Íslend­inga brjóta gegn Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna við mót­töku fyld­ar­lausra barna.

Páll Valur: „Skammast mín mikið fyrir að svona skuli komið fram við þessi börn“

„Það er sorg­leg stað­reynd að við erum að bregð­ast þessum börnum,“ sagði Páll Valur Björns­son, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, í ræðu á Alþingi í morgun og vakti þar með athygli á stöðu fylgd­ar­lausra barna sem leita hingað til lands og biðja um alþjóð­lega vernd. Stundin sagði frá því í gær að ell­efu fylgd­ar­laus börn bíða nú úrlausnar sinna mála hér á landi. Í umfjöllun Stund­ar­innar kemur meðal ann­ars fram að sum barn­anna búi í hús­næði sem barna­vernd­ar­yf­ir­völd á við­kom­andi svæði hafa útvegað, til dæmis á gisti­heim­ilum. Þau sem sóttu um hæli í Reykja­vík hafa hins vegar flest haf­ist við í hús­næði á vegum Útlend­inga­stofn­unar í Bæj­ar­hrauni, því Barna­vernd Reykja­víkur hefur ekki útvegað þeim hús­næði á hennar vegum. Reynt er að koma þeim fyrir á svoköll­uðum fjöl­skyldu­gangi en stundum fara ungu drengirnir beint á hæð­ina sem ætluð er ein­hleypum karl­mönnum. 

Þá telur Rauði Kross Íslands einnig brotið á rétti barna með tann­grein­ingu. Verið sé að taka mjög íþyngj­andi ákvarð­anir, byggðar á vafasömum rann­sóknum sem stand­ast ekki skoðun. Nið­ur­stöð­urnar séu óná­kvæmar og óáreið­an­legar, enda séu fá lönd orðin eftir, sem Ísland vill bera sig saman við, sem not­ist við þær einar og sér.

Skammast sín sem Íslendingur og alþingismaður

„Samkvæmt tals­manni hæl­is­leit­enda hjá Rauða kross­inum líður sumum þeirra svo illa að þau tala um að þau vilji ekki lifa lengur. Það eina sem þau dreymi um samt sé að fá að lifa eðli­legu lífi og fá að ganga í skóla. Það er nú öll heimtu­frekjan,“ segir Páll Valur og vitnar í við­tal Stund­ar­innar við Guðríði Láru Þrast­ar­dóttur hjá Rauða kross­inum. „En við getum af ein­hverjum óskilj­an­legum ástæðum ekki látið það eftir þeim. Þeim finnst að eng­inn vilji þau og ég er ekki hissa á því. Sem Íslend­ingur og alþing­is­maður skamm­ast ég mín mikið fyrir að svona skuli vera komið fram við þessi börn, sem koma hingað til lands til að leita skjóls hjá okkur.“     

„Þeim finnst að eng­inn vilji þau og ég er ekki hissa á því.“

Páll Valur sagði sagði aðstæður fylgd­ar­lausra barna óásætt­an­legar, sem búa mörg innan um eldra fólk, þar sem öryggi þeirra er ekki tryggt. „Þrátt fyrir að barna­vernd­ar­yf­ir­völd í Reykja­vík eigi, með réttu, að bera ábyrgð á öllum fylgd­ar­lausum ung­mennum sem sækja um hæli í Reykja­vík, þá gera þau það ekki - þrátt fyrir ítrek­aðar óskir það um,“ sagði hann.  

„Hvernig sam­ræm­ist þetta Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna, sem er ekki aðeins mjög mik­il­vægur mann­rétt­inda­samn­ingur heldur einnig lög í þessu landi?“ spurði Páll Valur, og las upp hluta af 22. grein sátt­mál­ans, en þar segir: „Aðild­ar­ríki skulu gera við­eig­andi ráð­staf­anir til að tryggja að barn sem leitar eftir rétt­ar­stöðu sem flótta­maður, eða sem talið er flótta­maður sam­kvæmt við­eig­andi reglum og starfs­háttum þjóða­réttar eða lands­laga, fái, hvort sem það er í fylgd for­eldra eða ann­arra eða ekki, við­eig­andi vernd og mann­úð­lega aðstoð við að nýta sér þau rétt­indi sem við eiga [...].“

„Við­eig­andi vernd og mann­úð­lega aðstoð,“ ítrek­aði Páll Valur og spurði hvort Íslend­ingar væru að standa við skuld­bind­ingar sínar sam­kvæmt barna­sátt­mál­anum. „Ef við getum ekki sýnt mannúð, eigum við þá ekki að minnsta kosti að fara að lögum?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
5
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár