Ólafur Ragnar snæddi með bankamönnum og umdeildum auðmanni

Forseti lýð­veld­is­ins var staddur í London þegar Vigdís Finn­boga­dóttir var heiðruð í Reykja­vík. Hann snæddi kvöld­verð með stjórn Goldman Sachs bank­ans, sem tal­inn er vera einn helsti ger­and­inn í fjár­málakrepp­unni sem hófst árið 2008. Auð­mað­ur­inn Lakshmi Mittal bauð Ólafi en hann hefur verið sak­aður um þræla­hald.

Ólafur Ragnar snæddi með bankamönnum og umdeildum auðmanni

Forseti lýð­veld­is­ins, Ólafur Ragnar Grímsson, sá sér ekki fært að mæta á hátíð­ar­höld sem haldin voru í gær á Arn­ar­hóli í til­efni þess að 35 ár eru liðin síðan Vigdís Finn­boga­dóttir var kjörin for­seti.

Árni Sig­ur­jóns­son skrif­stofu­stjóri hjá emb­ætt­inu segir að ástæða þess sé að Ólafur Ragnar sé staddur í London þar sem hann hafi meðal ann­ars setið fund til heið­urs stjórn Goldman Sachs bank­ans.

„Forseti situr kvöld­verð í London sem Lakshmi Mittal, for­stjóri ArcelorMittal, heldur til heið­urs stjórn Goldman Sachs bank­ans. Þar var m.a. rætt um glímuna við fjár­málakrepp­una, árangur Íslend­inga og ákvarð­anir varð­andi fjár­magns­höftin,“ segir á heim­síðu for­seta­emb­ætt­is­ins. 

Bæði Mittal og Goldman Sachs er þó hvergi nærri óum­deildir og hefur Mittal meðal ann­ars verið sak­aður af sínum fyrr­ver­andi starfs­mönnum um þræla­hald.

„Það var ekki þannig að það væri verið að bjóða ein­hverjum sér­stökum stjórn­mála­mönnum“

Auður Hauks­dóttir, for­stöðu­maður Stofn­unar Vigdísar Finn­boga­dóttur í erlendum tungu­málum, segir í sam­tali við Stundina að engum stjórn­mála­mönnum hafi verið form­lega boðið á hátíð­ar­höldin.

Umdeildur auðmaður

Mittal er meðal rík­ustu manna heims og situr hann sjálfur í stjórn Goldman Sachs bank­ans. Árið 2011 var hann sjötti rík­asti maður heims sam­kvæmt tíma­rit­inu Forbes. Á nýjasta lista tíma­rits­ins hefur Mittal þó fallið niður í 82. sæti yfir rík­ustu menn heims.

Árið 2007 sök­uðu námu­menn í Kasakstan Mittal um að græða á þræla­haldi í kjöl­far fjölda dauðs­falla í námum í hans eigu. Námu­menn­irnir sögðu að rekja mætti 90 dauðs­föll yfir fjögura ára tíma­bili til sparn­að­ar­að­gerða fyr­ir­tæk­is­ins. Höfðu þeir orð á því að aðstæður væru verri í námum Mittals en í námum Soví­et­ríkj­anna.

Gerandi hruninu

Bankinn sem Ólafur Ragnar sat kvöld­verð til að heiðra er síst minna umdeildur og er jafn­vel nefndur sem einn helsti ger­andi í fjár­málakrepp­unni árið 2008. „Það ætti að velta Goldman upp úr tjöru og fiðri vegna 2008 hruns­ins,“ segir til að mynda í frétt Forbes frá árinu 2011.

Bankinn kemur víða við sem ger­andi í orsökum efna­hag­skrepp­unnar síð­ast­liðin ár. Bankinn var lyk­il­að­ili í und­ir­málslána­krepp­unni og græddi á hrun­inu með því að taka sér skort­stöðu gagn­vart því. Bankinn hjálp­aði Grikkjum að fela halla rík­is­sjóðs. Þrátt fyrir allt hefur bank­inn haldið velli og er jafn­vel í betri stöðu en fyrir hrun. 

Engum stjórnmálamönnum formlega boðið

Auður Hauks­dóttir, for­stöðu­maður Stofn­unnar Vigdísar Finn­boga­dóttur í erlendum tungu­málum, segir að Ólafi Ragnari hafi ekki verið form­lega boðið á hátíð­ar­höldin. Hún segir að engum ráða­manni hafi verið boðið á hátíð­ar­höldin heldur þjóð­inni í heild sinni. „Það var engum boðið. Áherslu­at­riði hjá okkur var að þetta væri fyrir alla Íslend­inga. Þetta væri bæði fyrir stjórn og stjórn­ar­and­stöðu, allt þingið. Það var ekki þannig að það væri verið að bjóða ein­hverjum sér­stökum stjórn­mála­mönnum, eins og þú sást þá vorum bara full­trúar stofn­un­ar­innar og fjöl­skyldan hennar Vigdísar og for­seti Alþingis á pall­inum, engir póli­tískusar,“ segir Auður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár