Fólk lenti í lífshættu við Bæjarins bestu þegar byggingarkrani hrundi yfir svæðið

Tvær ung­lings­stúlkur sluppu naum­lega undan bygg­ing­ar­krana sem hrundi yfir Bæjarins bestu. Trú­bador­inn Skúli mennski var inni á pylsu­vagn­inum þegar krann­inn féll yfir. „Ég er alveg í sjokki,“ segir Skúli.

Fólk lenti í lífshættu við Bæjarins bestu þegar byggingarkrani hrundi yfir svæðið

„Hey!“ hróp­aði verka­maður við nýbygg­ing­una á mótum Tryggva­götu og Hafn­ar­strætis þegar tuga metra hár bygg­ing­ar­krani byrj­aði að halla rétt í þessu, áður en hann hrundi yfir nýbygg­ing­una og hæfði nán­ast veg­far­endur við pylsu­stað­inn Bæjarins bestu.

Tvær ung­lings­stúlkur sátu á bekk við Bæjarins bestu þegar hlass hrundi í átt­ina að þeim. Þær náðu naum­lega að stökkva undan kran­anum sem kom fallandi í kjöl­farið og forða lífi sínu. „Ég hefði getað dáið,“ sagði önnur stúlkan. Þær grétu báðar. Hefðu þær ekki séð við­ar­bunk­ann falla í átt­ina að bekknum sem þær sátu á hefði farið illa fyrir þeim.

Skyndi­bita­stað­ur­inn sjálfur, Bæjarins bestu, slapp naum­lega við hlass sem féll við hlið stað­ar­ins. Inni á staðnum var trú­bador­inn Skúli mennski að störfum. Hann slapp ómeiddur, með kran­ann liggj­andi yfir staðnum. „Þetta var rosa­legt,“ segir Skúli.

Aðeins tveir voru í röð­inni að þessu sinni.

„Ég kem ekki út fyrr en þeta er allt hrunið. Sá sem stendur fyrir aftan þann sem var að versla tekur fyrst eftir þessu og byrjar að vara við. Það eru allir svo­lítið lengi að kveikja og ekki allir farnir frá fyrr en allt er fallið niður. Nema þær stelp­urnar sem ná að hlaupa eftir að hlassið dettur. Þá á kran­inn eftir að fara alveg niður og lendir á borð­inu þeirra. Ég var rosa lengi að kveikja á þessu. Það var ekki fyrr en ég heyrði dynk­inn. Það mun­aði engu að hlassið lenti á skúrnum,“ segir hann. 

„Ég er alveg í sjokki yfir þessu.“

„Það eru ein­hverjir vernd­ar­englar yfir þér í dag,“ segir kona sem stendur og fylgist með. „Já, já, nú fer maður heim og verður góður við börnin sín og heim­sækir ömmu,“ svarar Skúli. 

Hann stendur og horfir á skúr­inn og virð­ist rólegur. „Ég er alveg í sjokki yfir þessu. Ég get alveg  við­ur­kennt það,“ segir hann og beinir tal­inu að ung­lings­stúlk­unum: „Þær voru nokkrum sek­úndum frá því að lenda undir þessu. Þær fóru þegar hlassið datt. Þær voru á bekknum þarna sem er á hvolfi.“

Fólk á vett­vangi var í miklu upp­námi. Verka­menn við nýbygg­ing­una vildu ekki tjá sig. Ein­hverjir þeirra hlógu tauga­veikl­un­ar­hlátri. Það var mildi að eng­inn slas­að­ist.

Tveir verka­menn á staðnum sluppu einnig naum­lega, en þeir höfðu skömmu áður setið og unnið í tölvum í fall­línu kran­ans.

Orsökin oftast að verklagsreglum sé ekki fylgt

Svo virð­ist sem steypu­lóð sem veita eiga mót­vægi við þunga kran­ans hafi ekki verið nægi­lega þung eða að burð­ar­virki kran­ans hafi hrein­lega gefið sig og hann bognað undan hlass­inu sem hann bar.

Í flestum til­fellum sem bygg­ing­ar­kranar falla er um mann­leg mis­tök að ræða. Georg Árnason, eft­ir­lits­maður með bygg­inga­krönum hjá Vinnu­eft­ir­lit­inu, segir grein um orsakir þess að bygg­ing­ar­kranar falla, að það „hafi löngum viljað brenna við að bygg­ing­ar­kranar falli niður“ og valdi slysum eða óhöppum. „Í flestum þeim til­fellum, sem slys eða óhöpp verða, fara menn ekki eftir fyr­ir­mælum fram­leið­anda og Vinnu­eft­ir­lits­ins um verk­lags­reglur. Slíkar verk­lags­reglur gera lítið gagn meðan þær gleym­ast inni í vinnu­skúr eða eru týndar. Meðan svo er munu bygg­inga­kranar halda á fram að falla til jarðar.“

Málið í skoðun

Vinnu­eft­ir­litið er nú að rann­saka fall kran­ans. „Það er alveg ljóst að svona kranar hrynja ekki af sjálfu sér. Yfir­leitt falla svona kranar vegna yfi­r­á­lags, ónógs við­halds eða vegna þess und­ir­stöð­urnar eru ekki nógu góðar. Það eru tveir frá okkur á staðnum sem eru að skoða þetta, bæði tækja­kost­inn og mann­skap­inn, svo þetta kemur betur í ljós í dag,“ segir Sigurður Sig­urðs­son, svæð­is­stjóri hjá Vinnu­eft­ir­liti rík­is­ins.   

Verka­maður sem blaða­maður Stund­ar­innar ræddi við á vett­vangi greindi frá því að full­trúar Vinnu­eft­ir­lits­ins hafi fylgst áber­andi vel með fram­kvæmdum á svæð­inu að und­an­förnu. Sigurður seg­ist ekki geta stað­fest það. „Við fylgj­umst vel með öllum stærri og áhættu­meiri fram­kvæmdum og allir kranar eru skoð­aðir reglu­lega. Það er oft flókin flétta af verk­tökum og und­ir­verk­tökum sem koma að svona fram­kvæmdum. En við leggjum áherslu á það að það er aðal­eig­andi verks­ins sem er ábyrgur fyrir því.“

Skúli mennskiVar staddur í pylsu­vagn­inum þegar krann­inn hrundi yfir hann.
Heppni að ekki fór verrTveir voru í röð­inni að Bæjarins bestu, einn starfs­maður inni og tvær ung­lings­stúlkur á bekknum sem sést á hvolfi, þegar bygg­ing­ar­krani hrundi yfir svæðið.

 

SkemmdirÁ mynd­inni sést bekkur sem tvær ung­lings­stúlkur sátu á, en hann umturn­að­ist þegar kran­inn féll á hann.
HruniðHér sést hvernig bygg­ing­ar­kran­inn féll.
ÓhappiðVerka­mönnum var brugðið en létt þegar í ljós kom að eng­inn hafði slasast.

Myndband af vett­vangi nokkrum mín­útum eftir hrun kran­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár