Notaði sælgæti til að tæla til sín börn í Grafarholti

Lögreglu hafa borist tvær til­kynn­ingar á und­an­förnum dögum um mann sem tælir til sín börn með sæl­gæti í Graf­ar­holti.

Notaði sælgæti til að tæla til sín börn í Grafarholti

Karl­maður er tal­inn hafa notað sæl­gæti til þess að tæla til sín börn við frí­stunda­heim­ilið Stjörnu­land í Graf­ar­holti á þriðju­dag. „Hann sagði þeim að þau mættu alls ekki segja full­orðna fólk­inu frá því,“ segir Auður Hann­es­dóttir, móðir sex ára stúlku sem var í hópnum. Auður segir dóttur sína að öðru leyti lítið vilja tala um atvikið. „Henni finnst hún örugg­lega hafa gert mis­tök með því að þiggja nammi, þó svo að ég sé búin að ítreka fyrir henni að mis­tökin séu ekki hennar. Maðurinn var í hálf­gerðu húsa­sundi fyrir aftan bak­aríið, nálægt frí­stunda­heim­il­inu. Hann hefur örugg­lega verið að fylgj­ast með þeim. Hann bauð þeim nammi, en ítrek­aði að þau mættu alls ekki láta full­orðna fólkið vita. Þetta er í raun það eina sem ég er búin að fá upp úr dóttur minni. Hún á til dæmis mjög erfitt með að segja mér hvernig hann leit út. Hún nefndi skegg og gler­augu, en það gæti vel verið að hún hafi bara viljað segja eitt­hvað. Ég tek því alla­vega með miklum fyr­ir­vara.“

Auður segir að sér hafi skilj­an­lega verið mjög brugðið þegar dóttir hennar sagði frá atvik­inu að fyrra bragði. „Ég reyndi að tala við hana rólega svo hún færi ekki í lás og spurði nánar út í málið. Hún skynj­aði aug­ljós­lega að þetta væri eitt­hvað skrítið. En að öðru leyti lok­aði hún á þetta.“ Auður lét 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár