Nauðgunarsinni boðar fylgismenn sína að styttu Leifs við Hallgrímskirkju

Roosh Vorek, sem er áhuga­maður um nauðg­anir, skipu­leggur fjölda­hreyf­ingu og boðar íslenska karl­menn að styttu Leifs Eiríks­sonar fyrir fund.

Nauðgunarsinni boðar fylgismenn sína að styttu Leifs við Hallgrímskirkju

Öfgasinn­inn Roosh Vorek, sem aðhyllist meðal ann­ars nauðg­anir, hefur boðað fylg­is­menn sína að styttu Leifs Eiríks­sonar við Hall­gríms­kirkju næsta laug­ar­dag klukkan átta að kvöldi. 

Roosh Vorek gerir út á að kenna karl­mönnum að kom­ast yfir konur með ýmsum sál­fræði­brellum, eða jafn­vel nauðg­unum. Hann kom hingað til lands árið 2011 og olli fjaðrafoki með boð­skap sínum, þar sem hann hrós­aði sér meðal ann­ars af nauðgun á íslenskri konu. Nú reynir hann hins vegar að skipu­leggja fjölda­hreyf­ingar í kringum boð­skap sinn.

Uppfært 4. febr­úar: Fyr­ir­hug­uðum fundi Roosh Vorek hefur verið aflýst því Vorek seg­ist „ekki lengur getað tryggt öryggi og einka­líf þeirra manna sem vilja mæta“. Víða hafði verið boðað til mót­mæla vegna sam­kom­unnar og höfðu meðal ann­ars hátt í sex hund­ruð manns boðað komu sína á Hall­gríms­kirkju­torg á laug­ar­dag.

Leiðbeinir fylgismönnum

Í leið­bein­ingum Roosh, sem sagt er frá á umræðu­síð­unni Reddit.com, segir hann að haldnir verði 165 fundir á sama tíma á laug­ar­dag­inn. Stjórn­endur fund­anna muni bíða fylgj­end­anna á til­greindum stað og fara þaðan á fund­ar­stað­inn 20 mín­útur yfir átta.

„Til þess að koma auga á sam­herja okkar, spurðu ein­hvern sem virð­ist vera kom­inn á fund­inn eft­ir­far­andi spurn­ingar: „Veistu hvar ég finn gælu­dýra­búð?“ Ef þú ert spurður þess­arar spurn­ingar, svar­aði ját­andi. „Já, hún er einmitt hérna.“ Þú getur síðan kynnt sjálfan þig og fengið upp­lýs­ingar um hvert eigi að fara klukkan 8.20. Ef þú spyrð ein­hvern um gælu­dýra­búð­ina og þeir virð­ast ringl­aðir eða reyna raun­veru­lega að hjálpa þér að finna gælu­dýra­búð eru þeir ekki þarna til að mæta á fund­inn.“

Roosh hefur ítrekað lýst for­dómum á sam­kyn­hneigðum, konum, múslimum, gyð­ingum og fleirum, og lýst áhuga á að stofna her­deildir öfga­sinna í Evrópu og Banda­ríkj­unum. Því hefur verið varað við boð­skap hans víða um heim.

Ekki er ljóst hvort nokkur fylgj­andi hans sé stað­settur á Íslandi. Hann dvaldi hins vegar hér á landi í tíu daga til að skrifa bók um íslenskar konur.

Gortar af nauðgunum
Gortar af nauðg­unum Hér sjást til­vitn­anir í Roosh um aðgerðir hans gagn­vart konum.

Lýsti nauðgun á Íslandi

Roosh hefur meðal ann­ars skrifað bók um dvöl sína á Íslandi, þar sem hann lýsti því að hann hefði nauðgað konu. „Þar sem ég gekk aftur heim tók ég eftir því hversu full hún var. Í Banda­ríkj­unum hefði það flokk­ast undir nauðgun að sofa hjá henni, þar sem hún var ófær um að veita sam­þykki. Ég var edrú, en ég get ekki sagt að ég hafi hikað eða að mér hafi ekki verið sama. Ég ætla ekki að rétt­læta gjörðir mínar, en kyn­líf er það sem ég stunda,“ skrif­aði hann í bók sína Bang Iceland, þar sem hann leið­beinir karl­mönnum með að kom­ast yfir íslenskar konur, meðal ann­ars með því að „hella þær fullar og ein­angra þær“.

Fram kemur í máli íslensks not­anda Reddit að hann hafi til­kynnt atburð­inn til lög­reglu. Þá er hvatt til þess á síð­unni að fólk leggi sig fram um að trufla eða hindra fund­ar­höldin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár