Mynd: Heiða Helgadóttir

„Mér fannst lítið gert úr minni upplifun“

Halla Ólöf Jóns­dóttir kærði Róbert Árna Hreið­ars­son fyrir kyn­ferð­is­brot árið 2007, en þrátt fyrir að hafa verið dæmdur var honum ekki gerð refs­ing. Róbert Árni beitti blekk­ingum í gegnum „Ircið“ og sam­skipta­for­ritið MSN til þess að ávinna sér traust Höllu þegar hún var á tán­ings­aldri, fékk hana til þess að eiga í kyn­ferð­is­legum sam­skiptum við sig í gegnum netið og síma og braut síðan gegn henni á tjald­svæði á Akureyri þegar hún var sautján ára gömul.

„Ég leit á hann sem kærast­ann minn. Ég hafði prentað út mynd­ina sem hann sendi mér af sér og var alltaf með hana í vesk­inu mínu. Ég sýndi vin­konum mínum mynd­ina og laug því að við hefðum hist. En í hvert skipti sem ég sá tæki­færi til þess að hitta hann, þegar ég fór til Reykja­víkur að keppa í hand­bolta eða í skóla­ferða­lag, sagð­ist hann ekki geta hitt mig. Eitt sinn fór ég að heim­il­is­fang­inu sem hann gaf mér upp þegar ég var stödd í Reykja­vík en komst þá að því að það var ekk­ert hús með þessu núm­eri í göt­unni. Þetta virð­ist hafa verið útpælt.“ 

Þetta segir Halla Ólöf Jóns­dóttir um sam­skipti sín við „Rikka“ á árunum 2001 til 2006, en Rikki var dul­nefnið sem Róbert Árni Hreið­ars­son lög­maður not­aði til þess að þykj­ast vera ung­lings­strákur í þeim til­gangi að tæla til sín stúlkur. Hann var á sex­tugs­aldri.

Ári eftir að sam­skiptum Höllu og Rikka lauk var Róbert Árni dæmdur fyrir að tæla og brjóta kyn­ferð­is­lega á fjórum ung­lings­stelpum á aldr­inum 14 til 15 ára. Í kjöl­farið lagði Halla Ólöf einnig fram kæru gegn honum og þrátt fyrir að hafa verið sak­felldur var fang­els­is­dómur hans ekki þyngdur. 

Þráði að eiga kærasta

„Ég fékk tölvu í ferm­ing­ar­gjöf árið 2001 og stuttu síðar hafði Rikki sam­band við mig í gegnum „Ircið“, en þetta var fyrir tíma MSN,“ rifjar Halla upp, en síðar áttu sam­skiptin eftir að fær­ast yfir á sam­skipta­for­ritið MSN. Hún segir þau hafa skipst á myndum og hún hafi meðal ann­ars sent honum nýlega ferm­ing­ar­mynd af sér. Halla bjó á Akureyri, en Rikki sagð­ist eiga heima í Reykja­vík, og því kom ekk­ert annað en fjar­sam­band til greina. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

Myndir af neyðarmóttöku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“
FréttirKynferðisbrot

Myndir af neyð­ar­mót­töku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heim­ilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á verj­anda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar. Guðný segir ótækt að ger­endur í kyn­ferð­is­af­brota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að við­kvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lög­regl­unnar.“

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár