Matorka kvartar undan „neikvæðum áróðri“

Fyr­ir­tækið gagn­rýnir frétta­menn og hag­fræð­ing í umsögn til atvinnu­vega­nefndar, eftir umfjöllun og gagn­rýni á samn­ing upp á 700 millj­ónir króna í rík­is­að­stoð.

Fyr­ir­tækið Matorka sakar fjöl­miðla um nei­kvæðan áróður í umsögn til atvinnu­vega­nefndar um frum­varp til laga um íviln­anir til nýfjár­fest­inga á Íslandi. Fram kemur að fyr­ir­tækið hafi þurft að þola ein­hliða frétta­flutn­ing sem byggi á rang­færslum. Hér er lík­lega vísað til umfjöll­unar fjöl­miðla um fjár­fest­ing­ar­samn­ing­inn sem rík­is­stjórn Íslands gerði við Matorku þann 20. febr­úar síð­ast­lið­inn vegna bleikju­eldis á Reykja­nesi, í kjör­dæmi Ragn­heiðar Elínar Árna­dóttur iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra sem und­ir­rit­aði samn­ing­inn fyrir hönd rík­is­sjóðs án þess að fjallað hefði verið um hann á Alþingi. Málið vakti mikla athygli og gagn­rýndi Lands­sam­band fisk­eld­is­stöðva samn­ings­gerð­ina harð­lega.

Samningur kveður á um 700 milljónir kr.

„Að ívilnun félags­ins sé yfir 700 mkr. er hrein­asta þvæla. Hún getur að hámarki orðið 425 m.kr. ef áætl­anir ganga eftir,“ segir í erindi fyr­ir­tæk­is­ins til atvinnu­vega­nefndar. 

Samkvæmt þeim samn­ingi sem und­ir­rit­aður hefur verið fær fyr­ir­tækið rík­is­að­stoð, í formi afslátta af sköttum og opin­berum gjöldum, upp á tæpar 430 millj­ónir króna auk þjálf­un­ar­styrks sem gæti orðið allt að 2 millj­ónir evra, eða 295 millj­ónir íslenskra króna. „Rík­is­stjórnin mun eftir fremsta 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár