Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 8 árum.

Lýsir úthlutun lóðar til einkasjúkrahúss sem atvinnuþróunaraðstoð Mosfellsbæjar við huldumenn með óljósa eignastöðu

Full­trúi Íbúa­hreyf­ing­ar­inn­ar í Mos­fells­bæ gagn­rýn­ir harð­lega áform um einka­sjúkra­hús.

Lýsir úthlutun lóðar til einkasjúkrahúss sem atvinnuþróunaraðstoð Mosfellsbæjar við huldumenn með óljósa eignastöðu

Fyrsti fundur bæjarstjórnar Mosfellsbæjar eftir sumarfrí stendur nú yfir og hefur Sigrún Pálsdóttir, fulltrúi Íbúahreyfingarinnar bókað harða gagnrýni á vinnubrögð fulltrúa D- og S-lista í bæjarráði vegna úthlutunar lóða til einkasjúkrahúss og hótels með þyrlupalli. 

„Bæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar átelur þau vinnubrögð fulltrúa D- og S-lista í bæjarráði Mosfellsbæjar harðlega að hafa í sumarfríi bæjarstjórnar úthlutað óþekktum aðilum í trássi við eðlilega verkferla samtals hundrað og tuttugu þúsund m2 af landi Mosfellsbæjar til eignar undir þrjátíu þúsund m2 einkasjúkrahús og -hótel með þyrlupalli,“ segir í bókuninni sem Stundin hefur undir höndum.

Fram kemur að handhöfum leyfist að veðsetja lóðirnar að fengnu óskilgreindu leyfi Mosfellsbæjar og einnig kaupréttinn. Engin gögn hafi fylgt málinu sem bendi til forvinnu af neinu tagi.

„Engin áreiðanleikakönnun var gerð á því hvort um væri að ræða aðila sem væru traustsins verðir; engin greinargerð viðskiptabanka um fjárhagslega burði þeirra til að ráðast í verkefni af stærðargráðunni 50 milljarðar króna; engir útreikningar á arðsemi verkefnisins fyrir Mosfellinga; engar upplýsingar um umhverfisáhrif; ekkert samráð við heilbrigðisyfirvöld, heldur ekki íbúa og engin fagleg álit stjórnsýslustofnana. Lýðræðislegum stjórnsýsluþætti undirbúnings var hreinlega sleppt,“ segir í bókuninni.

Þá kemur fram að við lestur samningsins vakni grunur um að aðilarnir sem um ræðir hafi ekki fjármagn til að greiða gatnagerðargjöld nema þeir fái leyfi til að veðsetja landið.

„Landið er líklega það verðmikið að þeir geta líka tekið lán út á það til að fjármagna kostnað við að gera það byggingarhæft. Að því loknu geta þeir veðsett kaupréttinn. Samningurinn bendir til þess að þetta séu aðilar með hafa hugmynd en lítið sem ekkert eigið fé. Það má teljast með öllu óábyrgt af bæjarráði að afhenda óþekktum, erlendum aðilum verðmætar eignir sveitarfélagsins. Sá möguleiki er raunverulegur að landið komist í hendur þriðja aðila í gegnum veðsetningar og að sá aðili vilji síðan koma landinu í verð fyrir sem mestan pening, án tillits til hagsmuna sveitarfélagsins. Það gengur þvert á stefnu sveitarfélaga að selja land sem þau eiga.“

Telur fulltrúi Íbúahreyfingarinnar að samningurinn verði vart skilinn öðruvísi en sem atvinnuþróunaraðstoð Mosfellsbæjar við aðila sem bæjarráð viti ekki hverjir eru og hafi ekki sýnt fram á að hafa neitt eigið fé, hvað þá trúverðugleika eða burði til að standa í framkvæmdum upp á 50 milljarða. Í því sambandi veki athygli að þeir þurfi ekki að framvísa viðskiptaáætlun fyrr en 1. desember 2017. „Hér er um að ræða dýrmætt land í eigu Mosfellsbæjar sem látið er af hendi gegn vægu verði og fyrir starfsemi sem gengur þvert á vilja þjóðarinnar og stefnu stjórnvalda í heilbrigðismálum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Íslenska útrásin í bresku elliheimilin
Úttekt

Ís­lenska út­rás­in í bresku elli­heim­il­in

Fjár­festa­hóp­ur sem Kvika setti sam­an hef­ur á síð­ustu ár­um ver­ið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa kom­ið hing­að til lands til að mæla fyr­ir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Ís­landi. Kvika sjálf, og þar með ís­lensk­ir líf­eyr­is­sjóð­ir, er hlut­hafi í elli­heim­il­un­um sem skil­uðu arð­semi um­fram vænt­ing­ar á síð­asta ári.
Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkratrygginga með einkarekstri í heilbrigðiskerfinu
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigðis­kerf­inu

Will­um Þór Þórs­son heil­brigð­is­ráð­herra hef­ur stað­ið fyr­ir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigðis­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eft­ir­lit með þeim fjár­mun­um sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hef­ur sam­hliða því ekki ver­ið auk­ið. Will­um Þór svar­aði spurn­ing­um um með­al ann­ars á Al­þingi um miðj­an mán­uð­inn.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Sjúkratryggingar kanna gagnrýni lækna á útvistun aðgerða
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ing­ar kanna gagn­rýni lækna á út­vist­un að­gerða

Rík­is­stofn­un­in Sjúkra­trygg­ing­ar Ís­lands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem kom­ið hef­ur fram frá lækn­um á Land­spít­al­an­um á út­vist­un á að­gerð­um gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ing­ar segja að heil­brigð­is­ráðu­neyt­ið telji að þörf sé á að út­vista að­gerð­un­um jafn­vel þó lækn­ar á Land­spít­al­an­um segi að svo sé ekki.
Aðgerðir einkavæddar til Klíníkurinnar að ástæðulausu
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Að­gerð­ir einka­vædd­ar til Klíník­ur­inn­ar að ástæðu­lausu

Eng­ir bið­list­ar eru eft­ir að­gerð­um gegn en­dómetríósu á Land­spít­al­an­um en þrátt fyr­ir það ætla Sjúkra­trygg­ing­ar Ís­lands að einka­væða slík­ar að­gerð­ir með samn­ingi til fimm ára. Kven­sjúk­dóma­lækn­ar á Land­spít­al­an­um eru ósátt­ir við þetta og segja út­vist­un­ina óþarfa og lýsa yf­ir áhyggj­um af þró­un­inni.

Mest lesið

Hver er Jón Óttar? - „Ég hef sjálfur fylgst með fólki mánuðum saman“
1
Fréttir

Hver er Jón Ótt­ar? - „Ég hef sjálf­ur fylgst með fólki mán­uð­um sam­an“

Jón Ótt­ar Ólafs­son, einn þeirra sem stund­aði njósn­ir fyr­ir Björgólf Thor Björgólfs­son ár­ið 2012, gaf út glæpa­sögu ári síð­ar þar sem að­al­sögu­hetj­an er lög­reglu­mað­ur sem stund­ar hler­an­ir. Jón Ótt­ar vann lengi fyr­ir Sam­herja, bæði á Ís­landi og í Namib­íu, en áð­ur hafi hann ver­ið kærð­ur af sér­stök­um sak­sókn­ara, sem hann starf­aði fyr­ir, vegna gruns um að stela gögn­um.
Bannaður á leigubílastæðinu fyrir að leggja starfsfólk Isavia í einelti
3
Fréttir

Bann­að­ur á leigu­bíla­stæð­inu fyr­ir að leggja starfs­fólk Isa­via í einelti

Isa­via seg­ir leigu­bíl­stjóra, sér­stak­lega virk­an á sam­fé­lags­miðl­um, hafa lagt starfs­fólk flug­vall­ar­ins í einelti – með­al ann­ars með ásök­un­um í garð þess og nafn­birt­ing­um á net­inu. Hann hafi ver­ið sett­ur í ótíma­bund­ið bann vegna ógn­andi og óvið­eig­andi fram­komu. „Þetta er nátt­úr­lega óþægi­legt að mæta í vinn­una og verða svo fyr­ir áreiti,“ seg­ir einn starfs­mað­ur við Heim­ild­ina.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Hefði ekki dottið í hug að ráða sjálfan sig
1
Viðtal

Hefði ekki dott­ið í hug að ráða sjálf­an sig

Bogi Ág­ústs­son hef­ur birst lands­mönn­um á skján­um í yf­ir fjóra ára­tugi og flutt Ís­lend­ing­um frétt­ir í blíðu og stríðu. Hann seg­ir heim­inn hafa breyst ótrú­lega mik­ið til batn­að­ar á þess­um ár­um en því mið­ur halli á ógæfu­hlið­ina í rekstri fjöl­miðla á Ís­landi. Af öll­um þeim at­burð­um sem hann hef­ur sagt frétt­ir af lögð­ust snjóflóð­in fyr­ir vest­an ár­ið 1995 þyngst á hann. Enn þann dag í dag man hann hvernig var að þurfa að lesa upp nöfn þeirra sem dóu í flóð­inu á Flat­eyri.
Hver er Jón Óttar? - „Ég hef sjálfur fylgst með fólki mánuðum saman“
2

Grein um hópnauðgun byggð á Facebookfærslu: Athugaði „hvort þetta væri alvöru manneskja“
3
Fréttir

Grein um hópnauðg­un byggð á Face­book­færslu: At­hug­aði „hvort þetta væri al­vöru mann­eskja“

Mar­grét Frið­riks­dótt­ir, rit­stjóri Frétt­in.is, stend­ur við grein um hópnauðg­un hæl­is­leit­enda og stað­fest­ir að grunn­ur­inn að grein­inni sé Face­book-færsla sem kona birti um helg­ina. Önn­ur kona er merkt í færsl­unni – hún teng­ist mál­inu ekki neitt en hef­ur heyrt í fólki sem tel­ur að hún hafi orð­ið fyr­ir hópnauðg­un.
Bannaður á leigubílastæðinu fyrir að leggja starfsfólk Isavia í einelti
6
Fréttir

Bann­að­ur á leigu­bíla­stæð­inu fyr­ir að leggja starfs­fólk Isa­via í einelti

Isa­via seg­ir leigu­bíl­stjóra, sér­stak­lega virk­an á sam­fé­lags­miðl­um, hafa lagt starfs­fólk flug­vall­ar­ins í einelti – með­al ann­ars með ásök­un­um í garð þess og nafn­birt­ing­um á net­inu. Hann hafi ver­ið sett­ur í ótíma­bund­ið bann vegna ógn­andi og óvið­eig­andi fram­komu. „Þetta er nátt­úr­lega óþægi­legt að mæta í vinn­una og verða svo fyr­ir áreiti,“ seg­ir einn starfs­mað­ur við Heim­ild­ina.

Mest lesið í mánuðinum

Hefði ekki dottið í hug að ráða sjálfan sig
2
Viðtal

Hefði ekki dott­ið í hug að ráða sjálf­an sig

Bogi Ág­ústs­son hef­ur birst lands­mönn­um á skján­um í yf­ir fjóra ára­tugi og flutt Ís­lend­ing­um frétt­ir í blíðu og stríðu. Hann seg­ir heim­inn hafa breyst ótrú­lega mik­ið til batn­að­ar á þess­um ár­um en því mið­ur halli á ógæfu­hlið­ina í rekstri fjöl­miðla á Ís­landi. Af öll­um þeim at­burð­um sem hann hef­ur sagt frétt­ir af lögð­ust snjóflóð­in fyr­ir vest­an ár­ið 1995 þyngst á hann. Enn þann dag í dag man hann hvernig var að þurfa að lesa upp nöfn þeirra sem dóu í flóð­inu á Flat­eyri.
„Ég var bara glæpamaður“
3
Viðtal

„Ég var bara glæpa­mað­ur“

„Margt af því sem ég hef gert mun ég aldrei geta bætt fyr­ir,“ seg­ir Kristján Hall­dór Jens­son, sem var dæmd­ur fyr­ir al­var­leg­ar lík­ams­árás­ir. Hann var mjög ung­ur að ár­um þeg­ar ljóst var í hvað stefndi og fann ekki leið­ina út fyrr en ára­tug­um síð­ar. Í dag fer hann inn í fang­els­in til þess að hjálpa öðr­um, en það er eina leið­in sem hann sér færa til þess að bæta fyr­ir eig­in brot.
Hver er Jón Óttar? - „Ég hef sjálfur fylgst með fólki mánuðum saman“
5
Fréttir

Hver er Jón Ótt­ar? - „Ég hef sjálf­ur fylgst með fólki mán­uð­um sam­an“

Jón Ótt­ar Ólafs­son, einn þeirra sem stund­aði njósn­ir fyr­ir Björgólf Thor Björgólfs­son ár­ið 2012, gaf út glæpa­sögu ári síð­ar þar sem að­al­sögu­hetj­an er lög­reglu­mað­ur sem stund­ar hler­an­ir. Jón Ótt­ar vann lengi fyr­ir Sam­herja, bæði á Ís­landi og í Namib­íu, en áð­ur hafi hann ver­ið kærð­ur af sér­stök­um sak­sókn­ara, sem hann starf­aði fyr­ir, vegna gruns um að stela gögn­um.
Íslendingar vísa trans konu á flótta frá Bandaríkjunum úr landi
6
Fréttir

Ís­lend­ing­ar vísa trans konu á flótta frá Banda­ríkj­un­um úr landi

Kona sem er á flótta frá Banda­ríkj­un­um með son sinn sótti um al­þjóð­lega vernd á Ís­landi. Fyr­ir Út­lend­inga­stofn­un lýsti hún því hvernig hat­ur hafi far­ið vax­andi þar í landi gagn­vart kon­um eins og henni – trans kon­um – sam­hliða að­gerð­um stjórn­valda gegn trans fólki. Sjálf hafi hún orð­ið fyr­ir að­kasti og ógn­un­um. „Með hverj­um deg­in­um varð þetta verra og óhugn­an­lega.“

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár