Þingkona leigir ódýrt af ríkinu - en leigir hús sitt undir gistiheimili

Val­gerður Gunn­ars­dóttir þing­maður heldur húsi skóla­meist­ara á Laugum en leigir út ein­býl­is­hús sitt á Húsavík undir gisti­heim­ili. Leigan nið­ur­greidd. Hús­næðisekla á staðnum og skóla­meist­ari býr á heima­vist.

Þingkona leigir ódýrt af ríkinu - en leigir hús sitt undir gistiheimili
Gisti­heim­ili Fjöl­skylda Val­gerðar Gunn­ars­dóttur alþing­is­manns rekur gisti­heim­ilið Húsavík Guesthouse í ein­býl­is­húsi sínu á Húsavík. Þing­mað­ur­inn leigir á sama tíma hús skóla­meist­ara Fram­halds­skól­ans á Laugum á óljósum kjörum.

Val­gerður Gunn­ars­dóttir alþing­is­maður leigir ein­býl­is­hús af Fram­halds­skól­anum á Laugum á óljósum kjörum. Þing­mað­ur­inn á ein­býl­is­hús á Húsavík sem hefur verið breytt í gisti­heim­ili. Sonur Val­gerðar sér um útleigu húss­ins undir merkjum Húsavík Guesthouse. Um er að ræða sjö her­bergi og vænt­an­lega mikla veltu þar sem nóttin kostar ekki undir 10 þús­und krónum.

Uppfært: Við frá­gang prentút­gáfu Stund­ar­innar urðu þau mis­tök að orð féllu út og merk­ingu upp­hafs­setn­ingar frétt­ar­innar breytt. Þar var sagt að skóla­meist­ara­hús­inu á Laugum hefði verið breytt í gisti­heim­ili sem er alrangt. Eins og sjá má af fram­haldi frétt­ar­innar, fyr­ir­sögn og mynda­texta, var verið að vísa til húss þing­manns­ins á Húsavík sem er orðið gisti­heim­ili sem rekið er undir merkjum Húsavík Guesthouse. Beðist er vel­virð­ingar á mis­tök­unum. Sonur Val­gerðar, Örlygur Örlygs­son hefur nú upp­lýst að móðir hans komi ekki að rekstri gisti­heim­il­is­ins á Húsavík. Hann upp­lýsir ekki um að hvort hún fái leigu fyrir hús sitt. Val­gerður Gunn­ars­dóttir svar­aði ekki ítrek­uðum spurn­ingum Stund­ar­innar um málið. ​Hún er beðin vel­virð­ingar á því að röng full­yrð­ing hafi birst í frétt blaðs­ins um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár