Landspítalinn hættir langtímaleigu

Land­spítalinn hefur um árabil leigt út 12 íbúðir á Vífils­stöðum til starfs­manna á verði sem er langt undir leigu­verði á markaði. Í apríl ákvað Land­spítalinn að hætta lang­tímaleigu þessara íbúða. 73 fermetra íbúð var til dæmis leigð út á 62 þúsund árið 2011. Umboðs­maður Alþingis kom í veg fyrir hækkun leigu­verðsins fyrir áratug síðan.

Bara leigt til eins árs í senn
Bara leigt til eins árs í senn Fram­vegis mun Land­spít­ali - háskóla­sjúkra­hús bara leigja íbúð­irnar sem íslenska ríkið á á Víf­ils­stöðum eitt ár í senn. Páll Matth­í­as­son er for­stjóri Land­spít­al­ans. Mynd: Kristinn Magnússon

Land­spítali - háskóla­sjúkrahús hefur um árabil leigt út íbúðar­húsnæði í lang­tímaleigu til starfs­manna sinna á niður­settu verði í íbúðum við Vífils­staða­spítala í Garðabæ sem eru í eigu ríkisins. Nú í apríl var hins vegar ákveðið að segja öllum leigu­samningunum upp og verða íbúðirnar ekki leigðar út til starfs­fólks í lang­tímaleigu, samkvæmt svörum frá Ingólfi Þórissyni, framkvæmda­stjóra rekstrar­sviðs spítalans. Samtals er um að ræða 12 íbúðir við Vífils­staða­spítala.

Land­spítalinn hefur einnig haft ráðstöfunar­rétt yfir 9 íbúðum við geðsjúkrahúsið Klepp í austurbæ Reykja­víkur en þær íbúðir hafa verið leigðar út í skamm­tímaleigu til starfs­manna spítalans. Breytingarnar á leigu­fyrir­komulaginu hjá spítalanum munu ekki hafa áhrif á þessar íbúðir þar sem eingöngu hefur verið um að ræða skamm­tímaleigu.

73 fermetra íbúð á 62 þúsund

Leigan á húsnæðinu hefur síðastliðin ár numið um og innan við um það bil helmingi af markaðs­verði sambærilegra íbúða. Sem dæmi má nefna að samkvæmt leigu­samningi sem gerður var við einn starfs­mann Land­spítalans árið 2011 leigði hann 73 fermetra íbúð við Vífil­staða­spítala á tæplega 62 þúsund krónur á mánuði. Leigu­gjald annarra íbúða í eigu ríkisins sem spítalinn hefur til afnota við Vífil­staða­spítala hefur verið sambærilegt. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár