Stjórnendur álversins fá hærri desemberuppbót

Stjórn­endur álvers­ins í Straums­vík fá des­em­ber­upp­bót sam­kvæmt nýjum kjara­samn­ingum en almennir starfs­menn sam­kvæmt gömlum. Kjara­deilan í álver­inu er enn í hnút. Upp­lýs­inga­full­trúi Rio Tinto segir kjara­deilur ekki ógilda gerða samn­inga.

Stjórnendur álversins fá hærri desemberuppbót
Óánægja Óánægja er hjá starfs­mönnum álvers­ins í Straums­vík með að stjórn­endur þess fái des­em­ber­upp­bót sem er hlut­falls­lega hærri en þeirra sjálfra. Rannveig Rist er for­stjóri álvers­ins. Mynd: Pressphotos.biz/Geirix (Ásgeir Ásgeirsson)

„Okkur finnst þessi des­em­ber­upp­bót til milli­stjórn­enda bara skjóta skökku við í ljósi þeirrar stöðu sem uppi er hjá fyr­ir­tæk­inu,“ segir Sigurður J. Har­alds­son, starfs­maður álvers­ins í Straums­vík og trún­að­ar­maður starfs­manna, um des­em­ber­upp­bót til stjórn­enda og milli­stjórn­enda álvers­ins sem samið var við fyrr á þessu ári. Sigurður segir að kurr sé meðal starfs­manna álvers­ins út af des­em­ber­upp­bót­inni. Sigurður segir að des­em­ber­upp­bótin nemi um 300 þús­und krónum fyrir hvern milli­stjórn­anda. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár