Kristín svarar Sigmundi: „Þetta háttarlag er undarlegt“

Rit­stjóri Frétta­blaðs­ins svarar grein for­sæt­is­ráð­herra. Sig­mundur sagði blaða­menn Frétta­blaðs­ins vera full­trúa stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna. „Furðuleg blanda af sam­sær­is­kenn­inga­smíð og við­kvæmni,“ segir Kristín.

Kristín svarar Sigmundi: „Þetta háttarlag er undarlegt“

Kristín Þor­steins­dóttir, rit­stjóri 365 miðla, svarar Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, for­sæt­is­ráð­herra, í leið­ara í Frétta­blað­inu í dag. Líkt og Stundin greindi frá á mið­viku­dag sak­aði Sig­mundur Davíð blaða­menn Frétta­blaðs­ins, Kolbein Ótt­ars­son Proppé og Snærós Sindra­dóttur, um að vera full­trúa stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna í grein sem birt­ist í Frétta­blað­inu sama dag. Þá sagði hann dálk­inn „Frá degi til dags“ vera stjórn­ar­and­stöðu­dálk. Kristín segir þetta vera kunn­ug­leg stef „þessi furðu­lega blanda af sam­sær­is­kenn­inga­smíð og við­kæmni sem ráð­herr­anum er svo töm.“ 

„Fagfólk lætur ekki skoð­anir lita umfjöllun sína í fréttum. Að halda öðru fram er atvinnurógur. Um dálka­skrif og leið­ara gilda önnur lög­mál. Maður skyldi ætla að for­sæt­is­ráð­herra þekkti þau.

„Þessi furðu­lega blanda af sam­sær­is­kenn­inga­smíð og við­kæmni sem ráð­herr­anum er svo töm.“

Hlutverk fjöl­miðla er að veita vald­inu aðhald. Það er aumur fjöl­mið­ill sem ekki gagn­rýnir aðgerðir ráða­manna. Óhjá­kvæmi­lega hallar þar á rík­is­stjórn, enda öllu erf­ið­ara að dæma stjórn­ar­and­stöðu sem hefur fá tæki­færi til að hafa raun­veru­leg áhrif,“ skrifar Kristín enn­fremur. Þá bendir hún á að Frétta­blaðið sé ekki eini mið­ill­inn sem flæk­ist fyrir for­sæt­is­ráð­herra og vísar til ummæla Sig­mundar, í við­tali í Frjálsri verslun í mars á síð­asta ári, um að frétta­flutn­ingur RÚV um ESB-mál lit­ist af því að vinstri­s­innað fólk leiti frekar í fjöl­miðla­störf. 

Ásakar blaðamenn
Ásakar blaða­menn Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sagði full­trúa stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna, hvort heldur þeir tjái sig á þingi eða á leið­ar­a­síðu Frétta­blaðs­ins, eiga erfitt með að sætta sig við vel heppn­aða leið­rétt­ingu.

Sjá einnig: Framsókn krefst þess að RÚV hagi sér betur

Þá segir Kristín Sigmund ekki hafa dregið þann lær­dóm við afsögn Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, að vanda þyrfti með­ferð vald, „heldur að ástæða væri til að hafa áhyggjur af umræð­unni – eins og umræðan hefði brotið á hæl­is­leit­end­unum.“ Þá segir hún sam­flokks­menn Sig­mundar kynda undir enda hafi Karl Garð­ars­son alþing­is­maður til að mynda sagt for­sæt­is­ráð­herra verða fyrir póli­tísku ein­elti og hat­ursum­ræðu. 

„Þetta hátta­lag er und­ar­legt. Ráð­herr­ann hefur mörg vopn á hendi til að snúa aðstæðum sér í vil. Hann vann gríð­ar­legan kosn­inga­sigur síð­ast á grund­velli lof­orða um skulda­leið­rétt­ingu og harðrar afstöðu til kröfu­hafa bank­anna. Hann hefur verið fylg­inn sér í hvoru tveggja, og í grófum dráttum staðið við stóru orðin,“ skrifar Kristín og beinir því til Sig­mundar að vilji hann vinna annan kosn­inga­sigur þurfi hann að minna kjós­endur á eigin orð­heldni. Það hljóti að vera væn­legra til árang­urs en að kveinka sér stans­laust undan umræð­unni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár