Kjaradeilan í álverinu í Straumsvík: Rio Tinto vill lækka kostnað um 43 milljónir

Samn­inga­maður Rio Tinto sem kom frá Frakk­landi á þriðju­dag gaf upp að fyr­ir­tækið vilji skera niður um 43 millj­ónir króna. Þess vegna er kjara­deila Rio Tinto og starfs­manna í hnút. Nið­ur­skurð­ur­inn nemur 0,06 pró­sentum af tekjum álvers­ins í Straums­vík. Eitthvað annað vakir fyrir Rio Tinto en bara þessi launa­nið­ur­skurður.

Kjaradeilan í álverinu í Straumsvík: Rio Tinto vill lækka kostnað um 43 milljónir
43 millj­óna sparn­aður Sparn­að­ur­inn af hag­ræð­ing­ar­að­gerð­unum í álver­inu í Straums­vík nemur um 43 millj­ónum króna sam­kvæmt því sem franskur stjórn­ar­maður Rio Tinto sagði við samn­inga­menn Mynd: Pressphotos.biz/Geirix (Ásgeir Ásgeirsson)

Rio Tinto Group vill lækka kostnað í rekstri álvers­ins í Straums­vík um 300 þús­und evrur, eða um tæp­lega 43 millj­ónir króna, á ári og stendur þar af leið­andi í kjara­bar­átt­unni við starfs­menn álvers­ins sem svo mikið hefur verið fjallað um í fjöl­miðlum upp á síðkastið. Þessi tala kom fram í máli fransks stjórn­ar­manns Rio Tinto á Íslandi, Jean-François Mal­leville, á fundi með samn­inga­mönnum starfs­manna og verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar á þriðju­dag­inn. Fyrir þessu hefur Stundin heim­ildir.

Um 43 millj­ónir er talan sem Mal­leville sagð­ist aðspurður vilja spara í rekstr­inum með því að bjóða út ýmis verk í verk­töku sem áður hafa verið unnin af fast­ráðnum starfs­mönnum. Um er að ræða rúm­lega 30 störf við örygg­is­gæslu, hlið­vörslu, mat­reiðslu og fleira í álver­inu. Til sam­an­burðar má geta þess að heild­ar­tekjur Rio Tinto á Íslandi voru tæp­lega 500 millj­ónir doll­ara í fyrra, eða sem nemur 63 millj­örðum íslenskra króna. Hag­ræð­ing­ar­krafan nemur því 0,06 pró­sentum af heild­ar­veltu Rio Tinto á Íslandi á síð­asta ári. 

Ólafur Teitur Guðnason, upp­lýs­inga­full­trúi Rio Tinto á Íslandi, segir að Mal­leville hafi nefnt töl­una 350 þús­und evrur sem minnstu mögu­legu hag­ræð­ingu á fund­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár