Þingmaður Framsóknar: Óvinur nr. 1

Karl Garðarson, þingmaður Framsóknar­flokksins, sakar Ríkis­útvarpið um að standa fyrir herðferð gegn forsætis­ráðherra þar sem „öll lögmál hlutlægni látið undan“.

Karl Garðarson, þingmaður Framsóknar­flokksins, birti rétt í þessu pistilinn Óvinur nr. 1 á bloggsvæði sínu á Eyjunni þar sem hann sakar Ríkis­útvarpið um að standa fyrir herðferð gegn forsætis­ráðherra þar sem „öll lögmál hlutlægni látið undan“.

Í pistlinum tekur hann nokkur dæmi sem hann telur máli sínu til stuðnings. 

Þar telur hann upp að Kastljós hafi rætt við Jón Ólafsson heim­speking í síðustu viku, að Jóhann Hauksson og Jóhann Páll Jóhannsson, blaða­maður Stundarinnar, hafi verið í morgun­útvarpinu á föstudag, en Karl sakar bæði blaða­manninn og fjöl­miðilinn um hatur á Framsóknar­flokknum. Hann bendir einnig á að RÚV hafi rætt við annan prófessor í heimspeki í kvöld­fréttum, Vilhjálm Árnason. Steininn hafi síðan tekið úr þegar rætt var við Róbert Marshall, þingmann Bjartar framtíðar, og Indriða H. Þorláksson, hagfræðing og fyrr­verandi ríkis­skattstjóra, í útvarpinu í morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár