Ísraelar drápu 32 börn á Vesturbakkanum í fyrra

Undan­farin tvö ár hefur færst í aukana að ísraelskir hermenn og öryggis­verðir beiti óhóflegu valdi í átökum við mótmælendur. Afleiðingin er meðal annars sú að árið 2016 létust fleiri börn í Palestínu en síðustu tíu ár þar á undan.

Faris
Faris 15. ára. Skotinn í höf­uðið af ísra­elskum her­manni. Lést eftir 69 daga í dái.

Ísraelskir hermenn og öryggis­verðir drápu 32 palestínsk börn á hinum hersetna Vestur­bakka og í austur­hluta Jerúsalem árið 2016. Árið er það blóðugasta síðasta áratuginn fyrir palestínsk börn á svæðinu, samkvæmt rannsókn samtak­anna Defense for Children International (DCIP).

Þann 23. desember síðastliðinn lést hinn 15 ára gamli Faris Ziyad eftir að hafa verið 69 daga í dái. Ísraelskur hermaður skaut Faris í höfuðið í átökum við flóttamanna­búðirnar í Jalazoun sem eru fyrir norðan borgina Ramallah á Vestur­bakkanum, þann 25. október. „Ég horfði á Faris og sá höfuðið á honum hreyfast svo hratt og svo féll hann til jarðar með andlitið þakið blóði,“ sagði vitni í samtali við DCIP. „Þá fattaði ég að hann hefði verið skotinn í höfuðið.“

Samkvæmt fréttum í Ísrael fór fram rannsókn innan hersins. Niður­staðan hennar var að aftakan hefði verið réttlætanleg, en þó var hermönnunum veitt áminning og yfirmaður þeirra kallaður til yfirheyrslu vegna atviksins. Í sömu rannsókn var einnig farið yfir þrjár aðrar skot­árásir hersins sem ollu dauða eða alvarlegum meiðslum palestínubúa. Niður­staðan var að hermennirnir hefðu ekki fylgt þeim verk­ferlum sem hefðu getað komið í veg fyrir atvikin. Í sumum tilfellum hefðu hermönnunum engin ógn stafað af fólkinu og því var notkun skotvopna ónauðsynleg.

Mjög sjaldgæft er þó að hermenn þurfi á einhvern hátt að svara fyrir sakir sínar þegar kemur að óhóflegri notkun skotvopna á almenna borgara. Aðeins eitt atvik hefur átt sér stað síðan 2014 sem leiddi til sakfellingar í slíku máli.

Einn af tals­mönnum DCIP, Ayed Abu Eqaish, sagði ísraelska herinn hafa notað sífellt meiri hörku í samskiptum við mótmælendur síðustu 2 ár. „Notkun á banvænum vopnum er orðin venju­bundin hjá hernum, jafnvel í algjör­lega óréttlætanlegum aðstæðum, og án þess að þeir þurfi að svara til saka. Þetta veldur því að sífellt fleiri börn eru í hættu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár