Íslensk matorka í uppnámi vegna taps

Félag í eigu ríkis og sveit­ar­fé­laga keypti 5 pró­sent hlut í Íslenskri matorku á 20 millj­ónir. Ári síðar var 88 pró­sent hlutur í eign­ar­halds­fé­lagi seldur fyrir 440 þús­und krónur.

Íslensk matorka  í uppnámi vegna taps
Fékk háa rík­is­styrki Ragn­heiður Elín Árna­dóttir iðn­að­ar­ráð­herra og Árni Páll Ein­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Matorku, inn­sigla samn­ing við ríkið. Matorka fékk þjálf­un­ar­styrk upp á um 300 millj­ónir króna og skattaí­viln­anir og afslætti af opin­berum gjöldum upp á 400 millj­ónir króna.

Þrátt fyrir að stunda fremur afmark­aða og ein­falda fram­leiðslu á bleikju er fyr­ir­tækja­net fisk­eld­is­fé­lags­ins Matorku stórt og flókið. Frá því að félagið Íslensk matorka ehf. var stofnað árið 2010 hefur það félag og eign­ar­halds­fé­lag þess, sem síðar var stofnað, bæði skipt um nafn og verið marg­fært milli eign­ar­halds­fé­laga. Af árs­reikn­ingum félags­ins má sjá að síð­ast­liðin ár hefur félagið verið í tug­millj­óna tapi þrátt fyrir háa styrki frá sjóðum svo sem Rannís, Nordic Innovation, Nora og AVS.

Árið 2011 var 5 pró­senta hlutur í Íslenskri matorku seldur til Eign­ar­halds­fé­lags Suð­ur­lands, félags í eigu Byggða­stofn­unar,­ sveit­ar­fé­laga á Suð­ur­landi og fjár­festa, fyrir 20 millj­ónir króna. Nafnverð þessa hluta­bréfa var 648.875 krónur. Samkvæmt árs­reikn­ingum var ári síðar 88 pró­sent hlutur í eign­ar­halds­fé­lagi sama félags, seldur á 440 þús­und krónur. Nafnverð þeirra hluta­bréfa var 13.666.667 krónur.
Því má gróf­lega segja að eitt pró­sent hlutur í félag­inu hafi verið seldur til fjár­fest­inga­sjóðs fyrst og fremst í eigu rík­is­ins á fjórar millj­ónir meðan eig­endur mátu eitt pró­sent hlut ári síðar á fimm þús­und krónur.

Líkt og hefur komið fram fékk Matorka nýverið óvenju góðan ívilna­samn­ing þrátt fyrir ýmsa van­kanta á rekstri félags­ins.

Samkvæmt skýrslu stjórnar Íslenskrar matorku 22. apríl síð­ast­lið­inn hefur eldi á fiski til mark­aðs­stærðar gengið mjög illa.

Byrjuðu á Hekluborra

Eign­ar­halds­saga þessa fimm ára félags er flókin. Líkt og fyrr segir var félagið Íslensk Matorka ehf. stofnað árið 2010 í þeim til­gangi að stunda fisk­eldi á svo­kall­aðri til­apia eða Heklu­borra. Stofn­hlut­hafar voru þrír; Landás ehf., Nova Invest­ment ehf. og Svinna-verk­fræði ehf. Það ár keypti félagið þrotabú á Suð­ur­landi sem inni­hélt fisk­eldis­stöðvar í Galtalæk og Fells­múla upp í Land­sveit. Ári síðar fékk félagið lán frá Byggða­stofnun og Eign­ar­halds­fé­lag Suð­ur­lands, sem líkt og fyrr segir er að hluta í eigu Byggða­stofn­unar, kaupir 5 pró­sent hlut fyrir 20 millj­ónir. 

„Án þess­arar sölu stefnir félagið hrað­byri í gjald­þrot“

Skipti um nafn

Árið 2011 er félagið Matorka stofnað og stofn­endur Íslenskrar Matorku selja sína hluti í síð­ar­nefnda félag­inu inn í Matorku. Ári síðar er svo IceAq ehf. stofnað og er 88 pró­sent hlutur í Matorku seldur til IceAq fyrir alls 444 þús­und krónur. Stuttu síðar er svo Matorka Holdings stofnað í Sviss og IceAq selt inn í það félag. Það var svo fremur nýlega sem félögin skiptu um nafn, IceAq varð Matorka og það sem áður hét Matorka heitir nú Rann­sóknir og Þróun ehf. Í dag er staðan sú að Matorka, áður Iceaq, á 88,17 pró­sent í Rann­sóknir og þróun, áður Matorku, sem á svo aftur um 82,95 pró­sent í Íslenskri Matorku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár