Ísland leggst gegn aukinni samábyrgð Evrópuríkja í flóttamannamálum

Sigríður Andersen, dóms­mála­ráð­herra nýrrar rík­is­stjórnar, fór til Möltu og beitti sér gegn breyt­ingum á Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­inni og auk­inni sam­á­byrgð Evr­ópu­ríkja vegna afgreiðslu hæl­is­um­sókna. Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins vill mæta ákveðnum hópi hæl­is­leit­enda „með hörðum stál­hnefa“.

Ísland leggst gegn aukinni samábyrgð Evrópuríkja í flóttamannamálum

Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra lýsti efa­semdum fyrir Íslands hönd gagn­vart fyr­ir­hug­uðum breyt­ingum á Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­inni og áformum um aukna sam­á­byrgð Evr­ópu­ríkja vegna flótta­manna­vand­ans á fundi dóms­mála­ráð­herra og inn­an­rík­is­ráð­herra í Valetta á Möltu í síð­ustu viku.

Þetta kemur fram á vef inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins en á fund­inum voru Schengen-sam­starfið og mál­efni hæl­is­leit­enda til umræðu. 

„Ráðherra greindi þar frá áherslum nýrrar rík­is­stjórnar Íslands í hæl­is­málum ásamt efa­semdum Íslands gagn­vart fyr­ir­hug­uðum breyt­ingum á Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­inni, þ.e. auk­inni sam­á­byrgð vegna afgreiðslu hæl­is­um­sókna og áfram­flutn­ingi hæl­is­leit­enda frá þeim ríkjum Evrópu sem taka á móti flestum hæl­is­um­sóknum til ríkja sem ekki sæta sam­bæri­legri ásókn hæl­is­leit­enda,“ segir í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins. 

„Eigum að mæta þeim með hörðum stálhnefa“

Aukinnar hörku hefur gætt í mál­flutn­ingi íslenskra stjórn­mála­manna í umræðum um útlend­inga­mál und­an­farnar vikur.

„Við ætlum ekki að láta það átölu­laust ef menn ætla að mis­nota þá vel­vild sem við viljum sýna og ég held að öll þjóðin vilji sýna stríðs­hrjáðu fólki, ef menn vilja mis­nota hana með til­hæfu­lausum umsóknum um hæli,“ sagði nýr dóms­mála­ráð­herra í við­tali við RÚV á dög­unum.

Eins og Stundin greindi frá í gær kall­aði Óli Björn Kárason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, eftir því að hópi hæl­is­leit­enda sem hann telur að leiti hingað til lands til að „mis­nota vel­ferð­ar­kerfið“ yrði sýnd harka. Íslend­ingar hafi „villst tölu­vert mikið af leið“ í mál­efnum útlend­inga. Þetta kom fram í við­tali við hann á Útvarpi Sögu á dög­unum.

„Þegar kemur að útlend­inga­málum þá held ég að við höfum villst tölu­vert mikið af leið. Ég vil orða þetta þannig: Við eigum að opna faðm­inn mjúkan, gagn­vart því fólki sem þarf tíma­bundið eða jafn­vel til lang­frama að leita sér raun­veru­legs skjóls. En við eigum að mæta öllum þeim með hörðum stál­hnefa sem ætla að koma hingað til Íslands sem, í raun­inni ja eigum við að segja, mis­nota vel­ferð­ar­kerfið okkar,“ sagði Óli Björn.

Eins og til­kynn­ingin á vef inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins sýnir er þessum mál­flutn­ingi fylgt eftir á alþjóða­vett­vangi þar sem Ísland beitir sér gegn auk­inni sam­á­byrgð Evr­ópu­ríkja vegna afgreiðslu hæl­is­um­sókna. 

Sjá einnig:

Nýr mann­réttinda­ráð­herra rit­stýrði vefriti sem
hædd­ist að flótta­fólki og mann­rétt­inda­um­ræðu

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
4
Innlent

Segir skerð­ingu Loft­brúar byggða á röngum for­sendum

Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir upp­haf­legar fjár­heim­ildir að raun­virði. Ekki séu heldur traustar vís­bend­ingar um að stuðn­ing­ur­inn hafi hækkað flug­far­gjöld. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hyggst nú hækka fyr­ir­hug­aða nið­ur­greiðslu eftir hörð við­brögð við breyt­ing­unum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár