„Eina sjónhverfingin er ef þú hélst að þetta hefði verið hennar val. Ein af sex konum eru fórnarlömb heimilisofbeldis,“ segir í nýrri auglýsingu suðurafríska Hjálpræðishersins.
Í henni má sjá fórnarlamb heimilisofbeldis í kjólnum sem setti allt á hliðina í síðustu viku, en hart var deilt um hvort kjóllinn hafi verið hvítur og gylltur eða blár og svartur.
AuglýsinginSuðurafríski Hjálpræðishersinn notar blá/svarta, hvít/gyllta kjólinn til að vekja athygli á heimilisofbeldi.
„Hversvegna er svo erfitt að sjá svart og blátt?,“ er spurt í auglýsingunni.
Ýttu á + við höfund, fréttamál eða greinaröð til að fylgja því og fá tölvupóst þegar eitthvað nýtt kemur, einn á dag í mesta lagi. Því sem þú fylgir stjórnarðu á Minni síðu.
Athugasemdir
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Athugasemdir