Húsgagnalína fúskarans

Kristín Eiríks­dóttir ræðir við mynd­list­ar­menn um list­ina og lífið. Sá fyrsti sem hún tekur tali er Nikulás Stefán Niku­lás­son sem gerði nær­buxur í blýi í anda Calvin Klein, gjörn­ing fyrir ömmu og stól­inn sem Kristín spratt upp af þegar hún heim­sótti nýbak­aða móður.

Húsgagnalína fúskarans

Síðasta vetur eign­að­ist vin­kona mín stúlku­barn. Ég vitj­aði hennar þegar stúlkan var orðin einnar viku gömul, með­vituð um hvíld­ina sem fólk þarfn­ast á þessu við­kvæma tíma­bili, og stað­ráðin í að stoppa ekk­ert lengi.

Vinkonan sat í sófa með barnið í fang­inu og bauð mér sæti á stól and­spænis þeim. Ég sett­ist og dáð­ist að barn­inu og spurði hvernig hefði gengið og tal­aði eitt­hvað um fæð­ingar og hvít­voð­unga og hina heilögu nær­veru sem fyllti rýmið og dauð­ann og lífið og hvað þetta er nú furðu­legt allt saman og erfitt en gott og sæng­ur­kvenna­grát og nátt­úr­una og svo allt í einu, var mér ekki lengur til set­unnar boðið.Stóllinn sem ég hafði sest á, og var eini stóll­inn þarna inni, var svo óþægi­legur. Ég spratt á fætur og sá að um ræddi form­fagra en rygð­aða járn­grind með ólögu­legu tré­sæti sem slípað hafði verið niður þannig að sára­lítið var eftir.

Æ, fyr­ir­gefðu, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár