Hildur Lilliendahl ofsótt af einkaþjálfara: „Ég mun rústa þínu einkalífi“

Einka­þjálf­ar­inn Kristján Jökull Aðal­steins­son, sem hefur verið fasta­gestur á X-977, hótar Hildi Lilli­endahl. „Það vantar einn svona harðan til að utrýma þessum öfga­fem­inista,“ sagði hann.

Hildur Lilliendahl ofsótt af einkaþjálfara: „Ég mun rústa þínu einkalífi“
Kristján Jökull Finnst hót­anir sínar vera sak­lausar.

Hildur Lilli­endahl hefur fengið ógn­andi skila­boð og hót­anir frá manni sem seg­ist vera ósáttur við að kona hans sótti í Kvenna­at­hvarfið. „Ég mun rústa þínu einka­lífi,“ segir mað­ur­inn.

Þá sakar hann hana um að hafa reynt að kæra Egil Gillzenegger einka­þjálf­ara. „Reyndir að kæra Gills. Nú er það ég.“

Maðurinn, Kristján Jökull Aðal­steins­son, hefur verið fasta­gestur í útvarps­þætt­inum Harma­geddon á X-977, þar sem hann hefur vakið athygli fyrir skraut­leg og oft slá­andi ummæli um sig og konu sem fór frá honum. Hann hefur áður sent Hildi ógn­andi skila­boð. Þá sagði hann :„Vantar einn svona harðan til að útrýma þessum öfga­femínistum.“

Hildur vildi ekki tjá sig um málið við Stundina en benti ein­fald­lega á umræð­una undir Twitter deil­ing­unni sinni.

Í sam­tali við Stundina seg­ist Kristján ekki sjá hvað væri að skila­boð­unum, og leit ekki á þau sem hótun. Þegar blaða­maður bar undir hann ummælin „Það vantar einn harð­ann til að útrýma þessum öfga­femínista,“ sagði Kristján að hann meinti að hún væri öfga­fem­inisti „og hún er með hatur út í karl­menn.“

Blaða­maður: En hvað áttu við með þegar þú segir að það þurfi einn harð­ann til að útrýma henni?

Kristján: Ég veit það ekki. Ég er með les­blindu.

Blaða­maður: Já, þetta kemur les­blindu kannski ekki beint við.

Kristján: Nei, ég skal segja þér það, eða ég ætla ekk­ert að segja þér það. En ég meina get ég, get ég, ég bara tek þetta til baka sem ég sagði og bið hana afsök­unar á því.

Blaða­maður: Já, þú ert þarna ítrekað að senda henni skila­boð. Hún biður þig að hætta að senda sér skila­boð og þú heldur áfram og segir að þurfi einn harðan til að útrýma þessum öfga­fem­inista.

Kristján: Þá er ég að meina að breyta til, það er ekki fem­inista, ég sagði breyta þessum fem­inista og útrýma þessum öfga­fem­inista. Ég er að meina það, ég er ekk­ert að meina annað. En mér finnst þetta voða­lega, bara voða­lega sko, ég finnst þetta voða­lega sko sak­laust verð ég að segja. Mér finnst ekki þetta hótun.

Kristján hefur meðal ann­ars sagt á útvarps­stöð­inni X-inu að hann þyrfti aldrei að borga fyrir vændi vegna þess að hann væri svo mynd­ar­legur. Hann við­ur­kenndi í öðru sam­tali við þátt­inn að hann hefði slegið kon­una sína á skemmti­stað, eftir að hún hafði slegið hann.  

Kristján
Kristján Jökull

Í við­tali við DV árið 2014 tal­aði Kristján opin­skátt um fjögur ár sem hann var nem­andi í Öskju­hlíð­ar­skóla. Í skól­anum eru nem­endur með þroska­skerð­ingu, bæði lík­am­lega og and­lega, en sjálfur seg­ist Kristján aðeins hafa verið með athygl­is­brest og ofvirkni. „Þetta hefur haft slæmar afleið­ingar og ég hef verið reiður vegna þess í 27 ár,“ sagði Kristján í við­tal­inu. Að lokum var tekin ákvörðun um að flytja hann í annan skóla vegna ítrek­aðra beiðna hans þar um, og var hann þá fluttur í sér­deild í Fella­skóla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár