United Silicon héldu óleyfilegri losun leyndri en segja hana skaðlausa

United Silicon hefur ítrekað farið á svig við starfs­leyfi verk­smiðj­unnar og gefið mis­vísandi upp­lýs­ingar til Umhverf­is­stofn­unar. Í nýj­ustu skýr­ingum sínum segja þeir að mynd­skeið Stund­ar­innar hafi sýnt losun á hættu­lausu ryki.

United Silicon héldu óleyfilegri losun leyndri en segja hana skaðlausa
United Silicon Rykið segir United Silicon skað­laust og að þetta hafi aðeins verið gert einu sinni. Umhverf­is­stofnun hefur hins­vegar fengið ábend­ingar um að þetta hafi gerst oftar. Ólögleg og til­kynn­ing­ar­skyld losun sem brýtur skil­mála starfs­leyfis, segir stofn­unin.

„Við fengum þær skýr­ingar að þetta væri hættu­laust kís­il­ryk og að starfs­menn hafi reynt að losa um stíflu í reyk­hreinsi­virk­inu með þessum hætti,“ segir Sigríður Krist­jáns­dóttir, teym­is­stjóri hjá Umhverf­is­stofnun, um mynd­skeið sem Stundin birti í gær og sýndi óleyfi­lega losun á efnum úr verk­smiðju United Silicon í Reykja­nesbæ.

Sigríður segir að Umhverf­is­stofnun hafi haft sam­band við for­svars­menn United Silicon í Helguvík strax í gær­kvöldi þegar starfs­menn hafi séð mynd­skeiðið og að stofn­unin hafi fengið þessar skýr­ingar frá for­svars­mönnum verk­smiðj­unnar, sem hafa þó áður verið staðnir að því að gefa Umhverf­is­stofnun mis­vísandi upp­lýs­ingar.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Stund­ar­innar frá starfs­mönnum United Silicon var um að ræða óeðli­lega og óheim­ila losun á skað­legum efnum sem hefði verið stunduð ítrekað. Nánar verður fjallað um óheim­ila losun United Silicon á efnum og önnur frá­vik frá starfs­leyfi verk­smiðj­unnar í prentút­gáfu Stund­ar­innar sem kemur út á morgun. Þá munu einnig fleiri mynd­skeið líta dags­ins ljós á vef Stund­ar­innar frá vinnu­svæði verk­smiðj­unnar, bæði inn­an­húss sem utan.

Óheimil losun

Verk­smiðj­unni var ekki heim­ilt að losa umrædd efni á þennan hátt, hvort sem um var að ræða hættu­leg efni sem verða til við fram­leiðslu eða hættu­laust kís­il­ryk. Þá var United Silicon einnig skylt að til­kynna um þessa losun en það gerðu for­svars­menn verk­smiðj­unnar ekki heldur. Þetta stað­festir Sigríður og segir að Umhverf­is­stofnun sé nú að und­ir­búa eft­ir­lits­ferð á vinnu­svæðið. Umhverf­is­stofnun kveðst vera með verk­smiðju United Silicon í „gjör­gæslu“.

Hvað sjá­an­lega mengun varðar í öðru mynd­skeiði sem Stundin birti og var tekið af vinnu­svæði verk­smiðj­unnar um klukkan hálf þrjú í gær­dag segir Umhverf­is­stofnun að for­svars­menn United Silicon hafi ekki getað gefið skýr­ingar á þeirri mengun þar sem slökkt hafi verið á ofn­inum. Þá var sagt að for­svars­menn United Silicon hefðu efa­semdir um að mynd­skeiðið hafi verið tekið um miðjan dag í gær. Mynd­skeiðið var tekið klukkan hálf þrjú í gær.

Óvenjulegar mælingar

Þær skýr­ingar United Silicon að þeir viti ekki hvað hafi verið í gangi á þessum tíma eru í mót­sögn við bæði mynd­skeiðið sem Stundin birti og loft­gæða­mæla á svæð­inu sem sýndu mikla köfn­un­ar­efn­is­dí­oxíð-mengun frá hádegi í gær og fram til um það bil klukkan átta í gær­kvöldi. Hægt er að sjá þessar nið­ur­stöður á vef­síð­unni Andvari.is en hún er rekin af Orku­rann­sóknum Keilis sem sér um loft­gæða­mæl­ingar í kring um athafna­svæðið í Helguvík.

Stundin bar þessar tölur undir Umhverf­is­stofnun og feng­ust þau svör að málið þyrfti að skoða nánar þar sem það væri óvenju­legt að slík mengun væri að finn­ast í þessu magni þegar slökkt væri á ofni verk­smiðj­unnar.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar voru starfs­menn að losa ryk og reyk úr reyk­hreinsi­virki verk­smiðj­unnar á sama hátt og var sýnt í mynd­skeiði sem birt var með umfjöll­un­inni í gær. Þrátt fyrir það seg­ist United Silicon aðeins hafa losað efni frá fram­leiðsl­unni á þennan hátt einu sinni.

Umhverf­is­stofnun stað­festir þó að þeir hafi fengið ábend­ingar um að þetta hafi gerst oftar.

Hleri hafi óvart opnast

Krist­leifur Andr­és­son, yfir­maður umhverfis- og örygg­is­mála hjá United Silicon, segir í fyrsta lagi alrangt að þetta hafi verið gert í skjóli nætur. Ekki sé unnið á þessu svæði á næt­urnar. Nákvæm­ari upp­lýs­ingar hafði hann þó ekki. Hvað varðar sjá­an­legu meng­un­ina sem sást í mynd­skeiði Stund­ar­innar í gær segir Krist­leifur að hleri hafi af ein­hverjum ástæðum óvart opn­ast með þeim afleið­ingum að kís­il­ryk blés út úr reyk­hreinsi­virk­inu og út í and­rúms­loftið. Það atvik var ekki til­kynnt til Umhverf­is­stofn­unar.

Þá hafa átt sér stað nokkur meng­unaró­höpp í verk­smiðj­unni sem voru heldur ekki til­kynnt. Hvorki til Umhverf­is­stofn­unar né heil­brigð­is­eft­ir­lits­ins. Þetta hefur Umhverf­is­stofnun líka stað­fest. Allt eru þetta frá­vik frá starfs­leyfi verk­smiðj­unnar sem þýðir ein­fald­lega að ekki hafi verið farið eftir þeim lögum og reglum sem United Silicon er gert að fara eftir.

Umhverfisstofnun hyggst sannreyna fullyrðingar

Líkt og Stundin greindi frá í gær er ekki hægt að full­yrða hversu mikið magn af skað­legum efnum leyn­ist í þess­ari losun versmiðj­unnar þar sem þess­ari aðferð hefur verið haldið leyndri fyrir Umhverf­is­stofnun. Starfs­maður United Silicon segir þetta þó gert ítrekað vegna þess að reyk­hreinsi­virki verk­smiðj­unnar hafi reynst of lítið fyrir það magn sem fram­leitt er og því stíflist það reglu­lega. Til þess að forða verk­smiðj­unni frá þeim kostn­aði sem hlýst af því að kaupa nýja síu­poka í reyk­hreinsi­virkið, sem eyði­leggj­ast þegar reyk­hreinsi­virkið stífl­ast, sé þrýst­ing á kerf­inu létt með þessum hætti. Verk­smiðjan hafi nú þegar eyði­lagt síu­poka fyrir tugi millj­óna og því sé þess­ari ólög­legu aðferð beitt.

Umhverf­is­stofnun hefur greint frá að hún hafi oftar en einu sinni fengið mis­vísandi upp­lýs­ingar frá United Silicon og að ekki hafi verið til­kynnt um atvik sem eru til­kynn­inga­skyld sam­kvæmt starfs­leyfi verk­smiðj­unnar. Aðspurð hvort það væri ekki eðli­legt að Umhverf­is­stofnun sann­reyni svör United Silicon um að þetta hafi verið hættu­laust kís­il­ryk segir Sigríður: „Jú, algjör­lega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Áhrif kísilvers United Silicon

Arion um sjálfbærnistefnu sína og kísilverið: „Bankinn tekur þá ábyrgð mjög alvarlega“
FréttirÁhrif kísilvers United Silicon

Arion um sjálf­bærni­stefnu sína og kís­il­verið: „Bankinn tekur þá ábyrgð mjög alvar­lega“

Arion banki er með­vit­aður um þá ábyrgð sem hvílir á bank­anum varð­andi mögu­lega end­ur­opnun kís­il­vers­ins í Helguvík. Kís­il­ver­inu var lokað vegna meng­unar árið 2017. Stefna bank­ans í umhverf­is­málum hefur tekið breyt­ingum á liðnum árum og svarar bank­inn meðal ann­ars spurn­ingum um hvernig þessa stefna rímar við end­ur­opnun meng­andi kís­il­vers.
Guðbrandur þurfti púst til að hjálpa sér við að anda út af kísilverksmiðjunni
ViðskiptiÁhrif kísilvers United Silicon

Guð­brandur þurfti púst til að hjálpa sér við að anda út af kís­il­verk­smiðj­unni

Arion banki hyggst opna aftur kís­il­verk­smiðj­una í Helguvík sem hefur verið lokuð í tæpt ár. Allir bæj­ar­full­trúar í Reykja­nesbæ hafa lýst sig and­víga opn­un­inni og 350 athuga­semdir bár­ust frá íbúum í bænum. Guð­brandur Ein­ars­son', bæj­ar­full­trúi og þing­maður VIð­reisnar, lýsir áhrifum verk­smiðj­unnar á heilsu­far sitt og útskýrir hvers vegna má ekki opna hana aftur.
Stjórnmálamenn töluðu upp United Silicon og fögnuðu ákaft: „Við erum búin að bíða lengi“
FréttirÁhrif kísilvers United Silicon

Stjórn­mála­menn töl­uðu upp United Silicon og fögn­uðu ákaft: „Við erum búin að bíða lengi“

„Þetta er mjög stór stund,“ sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þá for­sæt­is­ráð­herra, þegar fyrsta skóflustungan var tekin að verk­smiðju United Silicon, sem fór í gjald­þrot í dag eftir að hafa marg­brotið starfs­leyfi og mein­tan fjár­drátt for­stjór­ans. Bæj­ar­stjór­inn í Reykja­nesbæ gagn­rýndi úrtöluraddir. „Við erum búin að bíða lengi,“ sagði iðn­að­ar­ráð­herra.
Dularfullur barón keypti í kísilveri og seldi virkjanaréttindi
Fréttir

Dul­ar­fullur barón keypti í kís­il­veri og seldi virkj­ana­rétt­indi

Ítalskur barón, Felix Von Longo-Lieb­en­stein, hefur verið virkur í jarða­kaupum á Íslandi frá síð­ustu alda­mótum en hefur náð að halda sér utan kast­ljóss fjöl­miðla. Hann var einn af hlut­höf­unum í kís­il­fyr­ir­tæk­inu United Silicon og seldi dótt­ur­fé­lagi HS Orku vatns­rétt­indi út af virkjun á Ströndum. Illa gengur að fá upp­lýs­ingar um bar­ón­inn.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár