Helgi Hrafn býður sig ekki fram til Alþingis: „Ég er ekki í stjórnmálum fyrir persónufylgið“

Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, mun ekki bjóða sig fram til Alþingis í næstu þing­kosn­ingum. Hann mun starfa áfram fyrir flokk­inn og hyggst bjóða sig fram árið 2020, eða fyrr ef stjórn­ar­skrár­málið krefst þess.

Helgi Hrafn býður sig ekki fram til Alþingis: „Ég er ekki í stjórnmálum fyrir persónufylgið“

Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, hyggst ekki bjóða sig fram í kom­andi Alþing­is­kosn­ingum. Þetta til­kynnti hann í mynd­bandi sem hann sendi frá sér í gær. Hins vegar ætlar hann að bjóða sig fram til Alþingis fyrir Pírata árið 2020, eða fyrr ef stjórn­ar­skrár­málið krefst þess, eins og hann orðar það. Hann full­yrðir að árið 2020 verði alveg jafn mikil þörf á Pírötum og nú. „Ef ég á að þykja eitt­hvað ægi­lega mik­il­vægur fyrir Pírata þá held ég að ég verði alveg jafn mik­il­vægur þá,“ segir hann.    

„Ég hef verið vís­vit­andi að breiða út orðróm sem blaða­maður spurði mig út í í dag og orðróm­ur­inn er þess efnis að ég hygg­ist ekki bjóða mig fram í kom­andi alþing­is­kosn­ingum. Ég hef talað við alla nán­ustu sam­starfs­menn, fjöl­skyldu og fólk sem vinnur mikið með flokknum og finnst kom­inn tími til að ég útskýri hvað liggur að baki,“ segir Helgi Hrafn meðal ann­ars í mynd­band­inu. Hann segir mik­il­vægt að það sé á hreinu að þessi ákvörðun sé ekki tekin til þess að taka minni þátt í starfi Pírata, heldur þvert á móti. Hins vegar hafi hann sagt frá byrjun að hann hygð­ist aðeins sitja eitt kjör­tíma­bil en eftir að fylgið við flokk­inn fór að aukast hafi hann látið undan þrýst­ingi og skipt um skoðun. 

Vill brúa bilið milli þings og þjóðar

„Það er eitt sem við töl­uðum svo­lítið um í kosn­inga­bar­átt­unni 2013 er að okkur lang­aði að tengja almenn­ing betur við Alþingi og gras­rót Pírata og Pírata sem flokk. Búa til ein­hvers konar brú milli þings og þjóðar í lýð­ræð­is­skyni. Eftir þessi þrjú ár hefur það gerst að flokk­ur­inn Píratar hefur marg­fald­ast, bæði í félaga­tali og sömu­leiðis í fylgi. Innra starfið er orðið rosa­lega mikið. Það er eig­in­lega hlægi­legt að við séum sökuð um það nú til dags að við séum ekki með neinar stefnur því þær eru eig­in­lega orðnar of margar. Það er svo mikið í gangi. Á sama tíma er þing­flokk­ur­inn hins vegar á sama stað. Hann er jafn­stór og með jafn­mikið af fólki.

Helgi Hrafn segir flokk­inn og Alþingi mjög ólíkar stofn­anir og að það sé ógern­ingur að skilja Alþingi til hlítar án þess að hafa verið þar í ein­hvern tíma. Það þurfi því meiri en vilja til að byggja þessa brú milli þings og þjóðar, það þurfi þekk­ingu. 

„Ég er ekki í stjórn­málum fyrir per­sónu­fylgið.“

„Það er það sem ég ætla að bjóða mig fram í núna,“ segir hann. „Það er það sem ég vill gera á næsta kjör­tíma­bili. Að hjálpa til við að styrkja bæði þing­flokk­inn og flokk­inn að þessu leyti. Byggja þessa brú og efla lýð­ræðið að þessu leyti.“

Helgi Hrafn seg­ist gera sér grein fyrir því að fólk hafi áhyggjur af því að flokk­ur­inn missi per­sónu­fylgið sem hann hefur. „En ég er ekki í stjórn­málum fyrir per­sónu­fylgið,“ segir Helgi Hrafn hins vegar. „Ég er í stjórn­málum vegna þess að ég trúi á þann mál­stað að lýð­ræð­i­svæða þetta land, umfram það sem þegar er að sjálf­sögðu, og ég trúi því að sú lýð­ræð­i­svæð­ing verði að eiga sér stað víðar en á Alþingi. Hún þarf að eiga sér stað í flokk­unum, hún þarf að eiga sér stað í sam­fé­lag­inu og í gras­rótum flokk­anna. Þetta er sam­fé­lags­legt fyr­ir­bæri, lýð­ræðið, og við getum ekki bara stólað á að Alþing­is­menn komi að þeirri þróun.“

Segir ákvörðunina veikja flokkinn

Nokkrir hafa þegar tjáð sig um ákvörðun Helga Hrafns. Þannig segir Egill Helgason, sjón­varps­maður og blogg­ari, að ákvörðun Helga veiki Pírata­hreyf­ing­una mikið og dragi úr mögu­leikum hennar að sigra stórt í kosn­ing­unum í haust. „Að sama skapi eru þetta góð tíð­indi fyrir rík­is­stjórn­ar­flokk­ana sem losna við einn sinn skæð­asta and­stæð­ing,“ skrifar Egill og segir ákvörðun hans hálf óskilj­an­lega. „Helgi Hrafn er ein­fald­lega sá Pírati sem nýtur mestra vin­sælda og trausts. Það hefur hann áunnið sér með fram­göngu sinni á þingi og í fjöl­miðlum. Hann talar ætíð skýrt og mál­efna­lega, kynnir sér hlut­ina vel, kemur á óvart með því að fara ekki hefð­bundnar leiðir. Getur jafn­vel skipt um skoðun – sem er mik­ils­verður eig­in­leiki. Helgi á mjög stóran þátt í vin­sældum Pírata.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
6
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár