Menn­ing­ar­mið­stöðin Salam Sýr­lenski blaða­mað­ur­inn Hossam Aldeen (t.h.) kom menn­ing­ar­mið­stöð­inni Salam á kopp­inn fyrir um átta mán­uðum síðan. Mynd: Jón Bjarki Magnússon

Við mættum brjáluðu hafinu, en erum nú komin í skjól

Þúsundir sýr­lenskra flótta­manna koma til höf­uð­borgar Þýska­lands í viku hverri. Kanslari Þýska­lands hefur gefið það út að engin tak­mörk séu fyrir því hversu mörgum flótta­mönnum landið getur tekið á móti. Þessir nýju íbúar Berlínar koma sumir hverjir saman í menn­ing­ar­mið­stöð­inni Salam í úthverfi borg­ar­innar. Þar er spilað, sungið og skegg­rætt um stjórn­mál. Þrátt fyrir erf­ið­leika og óvissu eftir langt og strangt ferða­lag er þakk­læti ofar­lega í huga þessa fólks.

„Í gær voru yfir hund­rað manns hér. Við sýndum íþrótta­leik og eftir hann voru stjórn­mála­um­ræður þar sem fólk frá öllum stjórn­mála­flokkum Sýrlands, trúað og trú­laust, kom saman og ræddi málin. Þetta er einmitt mark­miðið með þessum stað, að ólíkt fólk geti sam­ein­ast, enda hefur stríðið orðið þess vald­andi að það hefur slegið í brýnu á milli ýmissa hópa. Í gær töl­uðum við saman og mér lík­aði það vel vegna þess að við erum að minnsta kosti að læra að hlusta á hvert annað.“

Við erum stödd í sýr­lensku menn­ing­ar­mið­stöð­inni Salam við hljóð­látu íbúð­ar­göt­una Butt­mann­strasse, í úthverfi Berlínar. Ungt fólk situr í einu horn­inu og spilar sýr­lenska þjóð­lagatón­list á strengi og slag­verk. Í næsta her­bergi spila eldri menn Backgammon á milli þess sem þeir puffa ávaxta­tó­bak úr vatns­pípu. Það rýkur úr teboll­anum sem sýr­lenski blaða­mað­ur­inn Hossam Aldeen réttir mér. Hann hefur haldið til í höf­uð­borg Þýska­lands síð­ustu ár og kom þess­ari menn­ing­ar­mið­stöð á fót­inn fyrir um átta mán­uðum.

„Við reynum að aðstoða fólk sem er nýkomið við að leysa ýmis hvers­dags­leg vanda­mál, svo sem varð­andi hús­næði, skóla eða vinnu,“ segir Aldeen. Mark­miðið er einnig að stuðla að menn­ing­ar­lífi á meðal þeirra sýr­lensku flótta­manna sem eru nýkomnir til borg­ar­innar, enda getur verið erfitt að standa skyndi­lega alls­laus í nýrri borg, nýju landi, nýrri heims­álfu. „Það mik­il­væg­asta hér er menn­ingin; við styðjum við lista­menn, við styðjum við tón­list­ar­menn, við erum að koma á fót bóka­safni og stefnum á útgáfu­starf­semi; við reynum að gera hvað við getum og bjóðum alla vel­komna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ESB

EfnahagsmálHorft til Evrópu

Efna­hags­legur ávinn­ingur „blasir við“

Hver er kostn­að­ur­inn við Evr­ópu­sam­bandið og hvað myndum við fá til baka? Gylfi Magn­ús­son, pró­fessor í hag­fræði, fer yfir efna­hags­leg áhrif af mögu­legri aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Áætlað er að nettófram­lag Íslands gæti verið á bil­inu sex til 15 millj­arðar á ári, en pró­fess­or­inn telur efna­hags­legan ávinn­ing meiri en útgjöldin.

9 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár