Ósáttur vefhönnuður notar heimasíðu kaffihúss í Keflavík í stríði við eigendur

Jóhann Páll Krist­björns­son segir að eig­endur kaffi­húss­ins Stefnu­móts skuldi sér laun. Á sínum tíma bjó hann til heima­síðu kaffi­húss­ins, sem hann notar nú sem vett­vang til að gagn­rýna eig­endur og vinnu­brögð þeirra. Selma Kristín Ólafs­dóttir, einn eig­andi félags­ins, segir að skrif hans skemmi fyrir rekstr­inum.

Ósáttur vefhönnuður notar heimasíðu kaffihúss í Keflavík í stríði við eigendur
Fær ekki laun Jóhann Páll Krist­björns­son notar heima­síð­una til draga fram sam­skipti sín við eig­endur. Mynd: Facebook

Það er ekki er hægt að segja að heima­síða Stefnu­móts á Suð­ur­nesjum sé góð aug­lýs­ing fyrir kaffi­húsið. Heima­síðan hefur verið lögð undir stríð við eig­endur kaffi­húss­ins, en Jóhann Páll Krist­björns­son segir að eig­endur kaffi­húss­ins neiti að greiða sér van­goldin laun. Hann skrifar um málið á heima­síð­una, sem hann bjó til á sínum tíma, en þar segir: 

„Á sínum tíma var þessi síða opnuð í þeim til­gangi að kynna kaffi­húsið Stefnu­mót í Reykja­nesbæ og koma á fram­færi þeim við­burðum sem þar áttu að fara fram. Vegna virð­ing­ar­leysis og van­efnda eig­enda og rekstr­ar­að­ila kaffi­húss­ins mun kaffi­stefnumot.is ekki þjóna þeim til­gangi lengur.

Ég und­ir­rit­aður er eig­andi léns­ins kaffi­stefnumot.is, hef lagt út alla vinnu við upp­setn­ingu og við­hald vefs­ins, er höf­undur að firma­merki og kynn­ing­ar­efni því sem Stefnu­mót notar (í heim­ild­ar­leysi), enda hefur aldrei verið greidd svo mikið sem ein króna fyrir þá vinnu sem sann­ar­lega var innt af hendi.“ 

Á síð­unni birtir Jóhann Páll einnig skjá­skot af sam­skiptum sínum við eig­endur félags­ins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár