Haukur fjármagnar íbúðarkaupin af Illuga persónulega

Illugi Gunnarsson greiddi 2.7 milljónir í leigu í fyrra sem er markaðs­verð. Ársreikn­ingur OG Capital stað­festir leigu­greiðslurnar og fjár­mögnun félagsins. Tengsl Illuga og Orku Energy hafa verið í kastljósi fjölmiðla liðna mánuði. Tæplega 50 milljóna króna skuld OG Capital við Hauk Harðarson.

Stærsti lánveitandinn
Stærsti lán­veit­and­inn Haukur Harð­ar­son lán­aði eigin eign­ar­halds­fé­lagi tæp­lega 50 millj­ónir króna í fyrra til að borga upp lán félags­ins OG Capital sem á íbúð Illuga Gunn­ars­sonar mennta­mála­ráð­herra. Viðsklptin hafa hingað til ekki verið fjár­hags­lega arð­bær fyrir Hauk. Mynd: Pressphotos

Eignarhalds­félagið sem keypti íbúð Illuga Gunnars­sonar menntamála­ráðherra af honum í árslok 2013 skuldar Hauki Harðar­syni, stjórnar­formanni Artic Green Energy sem áður hét Orka Energy, tæplega 50 milljónir króna. Svo virðist því sem Haukur hafi lánað félaginu, OC Capital, fjármuni til að kaupa íbúðina af Illuga eða þá að minnsta kosti tekið yfir þessar skuldir á síðasta ári. Nær allar skuldir OG Capital eru nú við Hauk Harðarson. Þetta kemur fram í ársreikningi OG Capital sem skilað var til ársreikninga­skrár Ríkis­skattstjóra þann 30. september síðastliðinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Orka Energy-málið

Fréttir

Samstarfs­maður íslenska ríkisins notaði þrjú félög í skatta­skjólum

Haukur Harðarson, fjár­festir og stjórnar­formaður Orku Energy, átti að minnsta kosti þrjú félög í skatta­skjólum sem hann notaði í viðskiptum sínum fyrir og eftir hrun. Stýrir fyrirtæki sem á í samstarfi við íslenska ríkið í orkumálum í Kína og hefur Haukur nokkrum sinnum fundað með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, vegna orkumála. Einsdæmi er að einka­fyrirtæki komist í þá stöðu sem Orka Energy er í í Kína.
PistillOrka Energy-málið

Ingi Freyr Vilhjálmsson

Tvö hliðstæð spill­ing­armál en bara ein athugun á mútubroti

Mál utan­ríkis­ráðherra Svíþjóðar, Margot Wallström, og mál Illuga Gunnars­sonar eru hliðstæð að ýmsu leyti. Bæði leigðu íbúðir af einkaðilum af óljósum ástæðum. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur brugðist við í tilfelli Wallström en enginn eftirlits­aðili hefur skoðað mál Illuga svo vitað sé. Af hverju stafar þessi munur á milli landanna?
PistillOrka Energy-málið

Ingi Freyr Vilhjálmsson

Illugi gerir undirmenn sína samábyrga

Illugi Gunnarsson menntamála­ráðherra gerði undirmenn sína í menntamála­ráðuneytinu samábyrga við skipu­lagn­ingu á opinberri heimsókn til Kína þar sem Orka Energy var í viðskipta­sendinefnd hans. Starfs­menn ráðu­neyt­isins vissu ekki um viðskipti Illuga og stjórnar­formanns Orku Energy. Einn af undir­mönnum Illuga í ráðuneyti er Ásta Magnúsdóttir sem kom að skipu­lagn­ingu ferðarinnar til Kína en ómögulegt hefur verið að ná í hana til að spyrja hana spurninga um ferðina.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár