Háskólanemar keppa í blóðgjöf

„Það er allt sem telur,“ segir Þorbjörg Auð­uns­dóttir hjá Blóð­bank­anum.

Háskólanemar keppa í blóðgjöf
Blóð­banka­bíll­inn í allri sinni dýrð. Þangað geta allir sem vilja mætt og gefið blóð. Fram­lagið nýt­ist öðrum vel í neyð. Mynd: Blóðbankinn

Blóð­gjafa­mán­uð­ur­inn er geng­inn í garð í Háskóla Íslands og nem­endur flykkj­ast nú að Blóð­bank­anum til að sjá hvaða nem­enda­fé­lag getur skilað mestu blóði. Blóð­gjafa­mán­uð­ur­inn er nú hald­inn í sjö­unda skipti síðan árið 2008. Í honum eru nem­endur við háskól­ann hvattir til að gefa blóð og það nem­enda­fé­lag sem gefur mest blóð hlýtur bikar fyrir.
 
Þeir sem vilja gefa blóð geta komið við í Blóð­banka­bílnum sem verður lagt fyrir utan háskól­ann á ákveðnum dag­setn­ingum en einnig er hægt að koma við í Blóð­bank­anum sjálfum. „Þá skrá stúd­entar nafn sitt og nem­enda­fé­lagið sem þau til­heyra en það nem­enda­fé­lag sem skilar mestu blóði hlýtur bikar fyrir fram­lagið,“ segir Þorbjörg Auð­uns­dóttir, sem hefur umsjón með öflun blóð­gjafar hjá Blóð­bank­anum. Síðasta ár vann nem­enda­fé­lag líf­einda- og geisla­fræði­nema, FLOG.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu