Gylfi Magnússon: Hugmyndir framsóknarmanna myndu „stórauka vanda ungs fólks sem er að kaupa sitt fyrsta húsnæði“

„Þeim sem er í nöp við verð­tryggð lán ætti að vera sama þótt aðrir taki slík lán ef þeir þurfa ekki að gera það sjálfir,“ skrifar Gylfi Magn­ús­son, dós­ent í við­skipta­fræði og fyrr­ver­andi ráð­herra.

Gylfi Magnússon: Hugmyndir framsóknarmanna myndu „stórauka vanda ungs fólks sem er að kaupa sitt fyrsta húsnæði“
Af þing­flokks­fundi í gær Mynd: Heiða Helgadóttir

Gylfi Magn­ús­son, dós­ent í við­skipta­fræði við Háskóla Íslands og fyrr­ver­andi efna­hags- og við­skipta­ráð­herra, gagn­rýnir harð­lega þær hug­myndir sem birt­ast í aðsendri grein sem Gunnar Bragi Sveins­son, land­bún­aðar- og sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, og Elsa Lára Arn­ar­dóttir, þing­kona Fram­sókn­ar­flokks­ins, fengu birta í Frétta­blað­inu í dag.

Elsa Lára Arnardóttir
Elsa Lára Arn­ar­dóttir

Í grein­inni tala þau fyrir því að gripið verði til aðgerða sem „minnki vægi verð­trygg­ing­ar­innar“ ef ekki sé meiri­hluti í þing­inu fyrir algjöru afnámi, þ.e. banni við verð­trygg­ingu af neyt­enda­lánum. Skemmst er að minn­ast þess að „afnám verð­trygg­ingar“ var eitt helsta kosn­inga­mál Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir þing­kosn­ing­arnar 2013. 

Í grein Gunnars Braga og Elsu eru viðr­aðar hug­myndir um að setja þak á verð­trygg­ingu þannig að ef verð­bólga fari yfir ákveðna pró­sentu þá taki lán­veit­andi á sig áhætt­una umfram það. Gylfi gerir athuga­semd við þetta.

„Þak á verð­trygg­ingu þýðir aukna áhættu fyrir lán­veit­endur (og mögu­legan happ­drætt­is­vinn­ing fyrir lán­tak­endur). Það býr til áhættu algjör­lega að óþörfu og mun ein­fald­lega leiða til hærri vaxta­kröfu, sem lán­tak­endur greiða,“ skrifar hann á Facebook-síðu sinni.

Gunnar Bragi Sveinsson
Gunnar Bragi Sveins­son

Í pistli Gunnars og Elsu er jafn­framt þeirri hug­mynd varpað fram að gerðar verði „breyt­ingar á útreikn­ingi verð­bólgu og verð­trygg­ingar þannig að fram­vegis verði notuð sam­ræmd vísi­tala neyslu­verðs (SVN) í stað vísi­tölu neyslu­verðs (VNV)“.

Að sögn Gylfa Magn­ús­sonar er út af fyrir sig ekki frá­leitt að miða við vísi­tölu neyslu­verðs án hús­næðis í stað þeirrar sem nú er notuð. „En það eykur áhættu í þessum við­skiptum því að það gerir það lík­legra að fast­eignir verði yfir­veð­settar eða a.m.k. með lítið veð­rými þegar fast­eigna­verð hækkar minna en almennt verð­lag. Það er því erfitt að sjá að þetta sé almennt til bóta. Það væri hins vegar alveg sjálf­sagt að leyfa fleiri vísi­tölur en eina í svona við­skiptum, líka t.d. launa­vísi­tölu og vísi­tölu fast­eigna­verðs. Það er algjör óþarfi að lög­gjaf­inn taki slíkt samn­ings­frelsi af fólki.“

Í grein sinni viðra Gunnar og Elsa loks hug­myndir um að settar verði tak­mark­anir á fjölda þeirra verð­tryggðu lána sem lána­stofn­anir geta átt. „En það er nú svo að verð­tryggðu lána­söfn/eigna­söfn bank­anna aukast veru­lega þegar verð­bólga fer af stað. Það verður eigna­til­færsla frá heim­ilum lands­ins til fjár­mála­stofn­ana. Það verður að stöðva,“ skrifa þau og bæta því við að breyta mætti útreikn­ingi verð­tryggðra lána „þannig að breyt­ingar á vísi­tölu reikn­ist á og greið­ist af hverjum gjald­daga fyrir sig en ekki höf­uð­stól“ og kom þannig í veg fyrir snjó­bolta­á­hrif verð­trygg­ing­ar­innar á lána­söfn.

Gylfi Magnússon
Gylfi Magn­ús­son

Gylfi er ósam­mála þess­ari nálgun:

„Að þvinga lán­tak­endur til að greiða verð­bætur jafn­óðum þýðir afar háa greiðslu­byrði fyrstu árin og í verð­bólgu­skoti en lága greiðslu­byrði undir lok láns­tím­ans, þegar lán­tak­endur þurfa almennt ekki á því að halda. Þetta myndi m.a. stór­auka vanda ungs fólks sem er að kaupa sitt fyrsta hús­næði og á í erf­ið­leikum með að standa undir greiðslu­byrð­inni. Það sama á við um hug­myndir um að setja þak á láns­tíma (sem tekur með­al­greindan banka­mann innan við eina mín­útu að finna leið fram­hjá).“

Að lokum segir hann ástæðu­laust að svipta fólk val­mögu­leikum. „Þeir sem vilja verð­tryggð lán (flestir m.v. hvers konar lán fólk tekur nú) eiga að geta tekið þau, hinir taka óverð­tryggð. Þeim sem er í nöp við verð­tryggð lán ætti að vera sama þótt aðrir taki slík lán ef þeir þurfa ekki að gera það sjálfir. Þessi þrá­hyggja, að vilja draga úr verð­trygg­ingu, er nán­ast óskilj­an­leg. Einu hald­bæru rökin gegn henni eru að hún dregur úr virkni pen­inga­stefnu Seðla­bank­ans. Það er út af fyrir sig alveg rétt. Tak­mörkun á frelsi til að semja um verð­trygg­ingu er hins vegar frá­leit aðgerð sé hún hugsuð sem ein­hvers konar neyt­enda­vernd.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár