Guðni: „Guðni Ágústsson er ekki á leiðinni á Bessastaði“

Guðni Ágústs­son svarar því afdrátt­ar­laust að hann muni ekki bjóða sig fram til for­seta. Hann þver­tekur fyrir að fylgj­ast með Gesti Val­garðs­syni úr fjar­lægð.

Guðni Ágústs­son er afdrátt­ar­laus hvað það varðar að hann muni ekki bjóða  sig fram til for­seta. Hann seg­ist sömu­leiðis ekk­ert hafa rætt við Gest Val­garðs­son, verk­fræð­ing og fyrr­ver­andi for­mann Fram­sókn­ar­fé­lags Kópavogs, sem vinnur að því að taka púls­ins á mögu­leika fram­boðs­ins hans. Í frétt DV um málið sagði Gestur að Guðni fylgd­ist gaum­gæfi­lega með úr fjar­lægð. Guðni sagð­ist hins vegar ekk­ert kann­ast við und­ir­bún­ing Gests. Stundin náði tali af Guðna Ágústs­syni þar sem hann var á göngu á strönd á Kanarí í „sól­skyni og sunnan vindi“ eins og hann komst að orði. „Hafðu það alveg á hreinu að Guðni Ágústs­son er ekki á leið­inni á Bessa­staði,“ segir Guðni.

Hann seg­ist ekki vilja velta fyrir sér hvor fari með rétt mál, hann eða Gestur. „Við skulum ekk­ert vera að velta því fyrir okkur. Ég hef ekki verið í neinu sam­bandi við vin minn, Gest. Þó menn nefni for­set­ann við mig og hafi gert árum saman, þá hef ég aldrei mátað mig við það emb­ætti og ég er ekk­ert á leið í fram­boð. Þannig að þetta er allt á hreinu af minni hálfu. Ég þakka þeim fyrir að nefna nafn mitt í svo stórt emb­ætti. Það er heiður og þökk sé þeim fyrir það en þeir eiga ekki að eyða tíma í þetta. Nú þarf að finna öfl­ugan for­seta sem full­nægir þessu mik­il­væga emb­ætti og þeim skil­yrðum sem gerð eru til for­seta Íslands,“ segir Guðni.

Guðni seg­ist ekki hafa neinn sér­stakan ein­stak­ling í huga sem arf­taka Ólafs Ragnars Gríms­sonar og býst hann við því að væn­legur kostur komi í ljós í mars­mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

SkoðunForsetakosningar 2016

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

11 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár