„Grúfðum okkur niður og óskuðum þess heitast að það næði ekki til okkar“

Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir lýsir stóra skjálft­anum í hlíðum Mount Everest.

Fjalla­garp­ur­inn Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir lá í tjald­inu sínu þegar jörðin fór að titra undir henni. Hún var stödd á skrið­jökli og ótt­að­ist það versta. Vilborg lýsir því sem gerð­ist þegar jarð­skjálfti upp á 7,9 á Richter skók Nepal, á sama tíma og hún dvaldi í tjaldi í hlíðum Mount Everest.

Heyrðu í snjóflóðunum í hlíðum fjallsins

„Við vorum stödd í búðum eitt þegar stóri skjálft­inn varð. Ég lá í tjald­inu mínu að slappa af þegar ég fann titr­ing­inn, ver­andi á skrið­jökli stökk ég út til að kanna hvað var um að vera,“ segir Vilborg á Facebook-síðu sinni. 

„Hjartað sló hratt og ótt­inn var yfir­gnæf­andi.“

„Erfitt var að átta sig á aðstæðum og fljót­lega fórum við að heyra í snjó­flóðum. Við stukkum inn í tjald og grúfðum okkur niður og óskuðum þess heit­ast að það næði ekki til okkar. Hjartað sló hratt og ótt­inn var yfir­gnæf­andi. Búðirnar sluppu og við sátun eftir í stóru púð­ur­skýi, það næsta sem við heyrðum var að ekk­ert væri eftir af búð­unum okkar niðri.“

Áfall að sjá hvernig var umhorfs

Hún lýsir því hvernig mynd komst smám saman á hörm­ung­arnar. „Smá saman fengum við fleiri bita í púslu­spilið og myndin var skelfi­leg. Það var erfitt að vera fastur og geta lítið lagt af mörkum. Næstu klukku­stundir og næsta nótt voru erfið. Ég hef aldrei verið jafn hrædd. Ég kom niður í base camp í gær og það vaf mikið áfall að sjá hvernig var umhorfs. Staðan í þorp­unum í kringum okkur er mjög slæm.
Við erum nú að hreinsa umhverfið okkar en ekki er ljóst hvenær við leggjum af stað til höf­uð­borg­ar­innar. Við erum skelkuð eftir atburði síð­ustu daga en að öðru leyti hraust,“ segir hún.

„Sjálf er ég mjög þakk­lát fyrir að vera á lífi.“

Sjálf lítur Vilborg svo á að hún hafi verið lánsöm að lifa af. „Hjarta mitt slær með þeim sem eiga um sárt að binda, misst hafa heim­ili og ást­vini. Við misstum 5 manns í kjöl­farið á jarð­skjálft­anum og 9 slös­uð­ust. Við syrgjum látna félaga og sendum fal­legar hugs­anir til hinna slös­uðu. Sjálf er ég mjög þakk­lát fyrir að vera á lífi eftir þessar nátt­úru­ham­farir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár