Gríðarleg óánægja með pólitíska þöggun meðal starfsmanna RÚV

Nýjar siða­reglur Ríkis­útvarpsins valda titringi. Starfs­menn eigi ekki að taka opinber­lega afstöðu á samfélags­miðlum.

Nýjar siða­reglur Ríkis­útvarpsins hafa valdið tölu­verðum titringi á meðal fjölmiðla­fólks. Segir í reglunum að starfs­fólk sem sinnir umfjöllun um fréttir, frétta­tengt efni og dagskrár­gerð eigi ekki að taka opinber­lega afstöðu í umræðu um pólitísk málefni eða umdeild mál í þjóðfélags­umræðunni, þar á meðal á samfélags­miðlum. Þykir þar vera girt fyrir tjáningar­frelsi dagskrár­gerðar­fólks með harðri hendi, og eru margir starfs­menn RÚV gríðar­lega ósáttir við þessa heftingu.

Stundin ræddi við nokkra starfs­menn sem vildu ekki koma fram undir nafni. Segja þeir að gríðar­lega óánægja sé innanhúss með þessa breytingu. 

„Fyrir mitt leiti er ég ekki að fara að breyta miklu, en mér finnst mjög vafasamt að setja sérstakar reglur um það hvernig blaðamenn megi tjá sig opinber­lega, þvert á siða­reglur blaðamanna­félagsins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár