Gefum gömlu strákunum frí

Hún lætur sem hún viti ekki af því að hún hafi kom­ist á eft­ir­launa­aldur fyrir nokkrum árum og gegnir enn þá tveimur störfum, rétt eins og hún hefur gert alla ævi. Eva Joly – eða Gro eins og hennar nán­ustu kalla hana – berst gegn skattaund­anskotum auð­manna og stór­fyr­ir­tækja, bæði sem þing­maður á Evr­ópu­þing­inu og lög­maður. Hún segir nauð­syn­legt að almenn­ingur geri sér grein fyrir að hann eigi í stríði gegn spill­ingu.

Gefum gömlu strákunum frí
Í stríði gegn spill­ingu Eva Joly segir nauð­syn­legt að nú sé komið að almenn­ingi að taka málin í eigin hendur og gefa þeim stjórn­mála­mönnum frí, sem ekki hafa almanna­hag að leið­ar­ljósi. Mynd: Kristinn Magnússon

Vinalegt and­lit hennar á bak við skörpu lit­ríku gler­augun vekur ósjálfrátt hug­renn­inga­tengsl við íslenska efna­hags­hrunið. Hún var um tíma ráð­gjafi Ólafs Þórs Hauks­sonar, þegar hann gegndi stöðu sér­staks sak­sókn­ara og hefur fylgst grannt með málum hér á landi eftir hrun. Í þetta sinn var Eva komin til Reykja­víkur til að taka þátt í mál­þingi í Norræna hús­inu, sem Píratar boð­uðu til síð­ast­lið­inn mánu­dag, undir yfir­skrift­inni Heim­ur­inn eftir Panama­skjölin. Það er ekki að ástæðu­lausu að hún er fengin til að ræða þau mál­efni. Hún er full­trúi franskra græn­ingja á Evr­ópu­þing­inu og situr í svo­kall­aðri Panama­skjala­nefnd sem tók nýlega til starfa. Nefnd­inni er ætlað að rann­saka meint brot og slaka stjórn­sýslu við fram­kvæmd Evr­ópu­laga gegn pen­inga­þvætti og skattaund­anskotum ýmiss konar. Þá liggur bein­ast við að spyrja hana hvort heim­ur­inn hafi eitt­hvað breyst eftir þennan stærsta gagna­leka sög­unnar?

Hún svarar því til að heim­ur­inn hafi breyst og líkir við­brögðum almenn­ings við Luxleaks-málið, þar sem fyrr­ver­andi starfs­maður end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins PricewaterhouseCoopers í Lúx­em­borg lak skjölum um skatta­hag­ræði alþjóð­legra stór­fyr­ir­tækja sem starfa í land­inu. Eva sat einnig í nefnd Evr­ópu­þings­ins sem fjall­aði um það mál. „Allir vissu að fjöl­þjóð­legu fyr­ir­tækin væru ekki að greiða sína skatta. En þegar fólk fékk upp­lýs­ing­arnar svona svart á hvítu, þegar það sá nöfn fyr­ir­tækj­anna og hvað þau greiða lítið til sam­fé­lags­ins, vakti það sterkar til­finn­ingar. Þessu er eins farið með Panama­skjölin. Við vissum að gríð­ar­legir fjár­munir væru í aflands­fé­lögum. En þegar við sáum nöfnin á bak­við þessa millj­arða gerð­ist eitt­hvað innra með okkur. Að sjá þarna þjóð­ar­leið­toga, hátt­setta ráða­menn, dóm­ara. Gagnsæi breytir afstöðu okkar, vekur hjá okkur löngun til að bregð­ast við. Það er eins og skyndi­lega hafi fjarað frá og við sjáum loks­ins allt það sem var falið undir yfir­borð­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár