Aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs: „Forsætisráðherrann hefur ekki sagt af sér“

Sigurður Már Jónsson upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar sendi frétta­til­kynn­ingu til erlendra blaða­manna þar sem fram kemur að for­sæt­is­ráð­herra hafi ekki sagt af sér og að Sigurður Ingi Jóhanns­son tæki við for­sæt­is­ráðu­neyt­inu „um óákveð­inn tíma“.

Aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs: „Forsætisráðherrann hefur ekki sagt af sér“

Í frétta­til­kynn­ingu frá Sigurði Má Jónssyni, upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar, til erlendra blaða­manna kemur fram að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hafi ekki sagt af sér, hann muni halda áfram sem for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins en að Sigurður Ingi Jóhanns­son tæki við for­sæt­is­ráðu­neyt­inu í „óákveð­inn tíma“. Það var Richard Milne, blaða­maður Financial Times á Norð­ur­lönd­unum, sem greindi frá þessu á Twitter-síðu sinni í kvöld og Kjarninn greindi fyrst frá.

Uppfært: Ásmundur Einar Daðason, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, tekur fram að Sig­mundur hætti sem for­sæt­is­ráð­herra. 

Sagt hefur verið frá því í fréttum um allan heim í dag að Sig­mundur Davíð hefði sagt af sér sem for­sæt­is­ráð­herra og Sigurður Ingi tæki við emb­ætt­inu. Það var til dæmis fyrsta frétt í fréttum klukkan sex á BBC. 

Ekki náð­ist í Sigurð Má Jónsson né Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­mann Sig­mundar Davíðs, við vinnslu frétt­ar­innar. 

Frétta­stofa RÚV náði hins vegar tali af Jóhann­esi Þór, aðstoð­ar­manni Sig­mundar Davíðs, sem stað­festi að það sem þar kemur fram sé rétt. Sig­mundur Davíð hafi lagt til að Sigurður Ingi tæki við í ótil­greindan tíma, og það geti þýtt fram að næstu kosn­ingum. 

Hann segir jafn­framt að Sig­mundur hafi ekki sagt af sér, hann sé enn starf­andi for­sæt­is­ráð­herra og verði það þar til hann hafi skilað umboði sínu til for­seta Íslands. Þannig beri að skilja þessa setn­ingu í yfir­lýs­ingu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins: „The Prime Minister has not resigned.“

Það var Sigurður Ingi Jóhanns­son sem til­kynnti um fjögur í dag að Sig­mundur Davíð hefði á þings­flokks­fundi Fram­sókn­ar­flokks­ins lagt til að Sigurður Ingi tæki við for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.

Í kjöl­farið fund­aði Sigurður Ingi með Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni Sjálfs­stæð­is­flokks­ins, um til­lög­una. Þeir mættu svo báðir í Kast­ljósið í kvöld þar sem þeir hefðu hafið við­ræður um hvort þeir gætu náð saman í stærstu málum rík­is­stjórn­ar­innar. Enn á eftir að koma í ljós hvort sú leið verði farin. 

Bjarni sagð­ist hins vegar vonast til þess að afsögn for­sæt­is­ráð­herra væri nóg til að lægja öld­urnar. Hann sagð­ist hafa lesið þannig í stöð­una að það sé uppi skýr og afdrátt­ar­laus krafa um að það verði brugð­ist við því ástandi sem hefði skap­ast fyrir nokkrum sól­ar­hringum. „Við skulum bara segja alveg eins og er. Spjótin beindust að for­sæt­is­ráð­herra. Og það var það sem ég sagði við hann í morgun.“

Sigurður Ingi var tví­vegis spurður að því hvort það væri klárt mál að Sig­mundur Davíð hefði stigið til hliðar. „Hann er búinn að stíga til hliðar,“ sagði hann þá, „og nú legg ég til að við förum í þetta. Núver­andi rík­is­stjórn er þannig að for­sæt­is­ráð­herra er fram­sókn­ar­maður og ég er bara að koma í stað­inn fyrir hann alveg eins og hefur gerst í rík­is­stjórn­inni með aðra ráð­herra á tíma­bil­inu,“ sagði Sigurður Ingi meðal ann­ars. 

Þar kom jafn­framt fram að til greina kæmi að flýta kosn­ingum. 

Sigurður Ingi var einnig til við­tals í Íslandi í dag í kvöld, þar sem hann ræddi áherslur sínar í þeim verk­efnum sem fyrir liggja.

Ásmundur Einar Daðason, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, áréttar í sam­tali við Stundina að Sig­mundur hætti. Ekki er hins vegar ljóst hvað felist í því að Sigurður Ingi taki við for­sæt­is­ráðu­neyt­inu um ótil­greindan tíma. „„Hann er bara að hætta sem for­sæt­is­ráð­herra og Sigurður Ingi að taka við, það er bara þannig. Enginn vafi á því,“ segir Ásmundur Einar í sam­tali við Stundina.

Fréttatilkynningin í heild sinni

Ladies and gentlemen 

I call your attention to the following information reg­ar­ding the Prime Minister of Iceland. 

For immedi­ate rel­e­ase: 

Prime Minister of Iceland very proud of Govern­ment’s success - sug­gests Progressive Party Vice-Chairman take over the office of Prime Minister for an unspecified amount of time.

Today the Prime Minister of Iceland Sig­mundur David Gunn­laugs­son has sug­ge­sted to the Progressive Party Parli­ament­ary group that the Progressive Party Vice-Chairman take over the office of Prime Minister for an unspecified amount of time. The Prime Minister has not resigned and will continue to serve as Chairman of the Progressive Party.

The Prime Minster is very proud of the success of his Govern­ment’s policies that have resulted in the resurrection of Iceland’s economy, an unprecedented rise in purchasing power, record low inflation and a general improvem­ent in liv­ing stand­ards for the Icelandic people.

The Prime Minister is especially proud of his Govern­ment’s hand­ling of Iceland´s situation with the creditors of the failed Icelandic banks. The Prime Minister has devoted much of his time in politics to the challenge of resol­v­ing the dramatic balance of pay­ment problem Iceland faced due to bank­ing crisis in 2008. If the creditors of the failed banks, which were nine times the size of the economy, had been allowed to take their claims and exit Iceland with for­eign currency, it would have had a devest­a­ting impact on the stand­ard of liv­ing for Icelanders. Instead the Prime Minister and his Govern­ment were able to bring to the table a solution which will have an exceptionally positive impact on the Icelandic economy. The net positive impact to the Icelandic economy is more than three billion GBP, or a quarter of Iceland´s GDP. The net external position of Iceland has never been as good as now.    

These facts are acknowledged by international experts, including Lee Buchheit, the Govern­ment’s advisor on capital account liberalization and a world renowned aut­hority on sover­eign debt reconstruction, who said in a recent interview that the result achieved in sett­ling the failed banks’ estates is unprecedented in world financial history and that this outcome could by no means have been expected.

The Prime Minister’s action reflects his wish to not stand in the way of the import­ant issues that still remain on the Govern­ment’s agenda being fin­is­hed in this term, issues like housing reform and the reform of the financial system that he will continue to fight for in the inter­est of the Icelandic people.  

In recent weeks, the Prime Minister and his wife have provided detailed answers to questions about the assets of the PM’s wife. They have never sought to hide these assets from Icelandic tax aut­horities and these hold­ings in Wintris have been reported as an asset on the Prime Minister’s wife’s income tax ret­urns since 2008 and taxes have been paid accordingly in Iceland. No Parli­ament­ary rules on disclosure have been bro­ken. Even The Guardian and other media covering the story have confirmed that they have not seen any evidence to sug­gest that the Prime Minister, his wife, or Wintris enga­ged in any actions invol­v­ing tax avoidance, tax evasion, or any dis­ho­nest financial gain.

As up until now, the Icelandic Govern­ment continues to use every option availa­ble to prevent tax avoidance.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár