„Þegar þessi tilfinning hellist yfir mig verð ég hamingjusöm“

Margréti Gauju stendur æ meira á sama um álit ann­arra. Hún ræðir ham­ingj­una.

„Þegar þessi tilfinning hellist yfir mig verð ég hamingjusöm“

Margrét Gauja Magn­ús­dóttir er ham­ingju­söm þegar hún finnur sjálfa sig í augna­bliki sem vermir um hjartað og hún veit að hún mun varð­veita sem góða minn­ingu. „Þau augna­blik geta verið lítil og smá­vægi­leg og líka stór­feng­leg. Þessi augna­blik sem maður brosir inní sér eða hrein­lega springur úr hlátri og jafn­vel grætur úr gleði.

Einnig finn ég að ég verð ham­ingju­sam­ari í mínu eigin skinni eftir því sem ég verð betri og betri í að vera skít­sama um hvað öðrum finnst. Þetta er ótrú­lega frelsandi tilfnn­ing sem krefst æfingar og stan­lausrar með­vit­undar en þegar þessi til­finn­ing hellist yfir mig, verð ég ham­ingju­söm því þá veit ég að ég er að þroskast og bæta mig. Ég veit að það tala allir um núvit­und og það að vera í núinu og njóta þess, en ég aft­urá­móti verð alltaf spennt og ham­ingju­söm þegar ég horfi fram í tím­ann og skipu­legg eitt­hvað skemmti­legt eða set mér mark­mið. Að gera góða, inni­halds­ríka „to do“ lista fulla af gleði gerir mig ham­ingju­sama.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár