Frakkar banna stórmörkuðum að henda mat - gámum læst á Íslandi

Íslenskir stór­mark­aðir læsa gámum þar sem útrunnum mat­vælum er hent, til að koma í veg fyrir að fátækir nýti sér mat­inn. Ný lög í Frakk­landi skylda stór­mark­aði til að nýta mat­inn.

Frakkar banna stórmörkuðum að henda mat - gámum læst á Íslandi
Franskur stór­mark­aður Franski mat­vöruris­inn Carrefour er þriðja arð­bærasta dag­vöru­versl­ana­keðja í heimi á eftir Walmart og Tesco. Mynd: Shutterstock

Í Frakk­landi, eins og á Íslandi, er miklu magni af mat hent úr stór­mörk­uðum þótt hann sé fylli­lega nýt­an­legur. Stór­mark­aðir vilja ekki gefa mat­inn, þar sem það dregur úr hagn­að­ar­von þeirra.

Franska þingið hefur nú sam­þykkt ein­róma frum­varp sem meinar stór­mörk­uðum að henda mat. Þing­mað­ur­inn Yves Jégo lýsti því á franska þing­inu hvers vegna þverpóli­tísk sam­staða um málið væri nauð­syn­leg: „Það ríkir alger neyð - góð­gerð­ar­sam­tök bráð­vantar mat. Það sem hreyfir mest við manni við þessi lög er að þau opna augu okkar fyrir þeim sem eiga um sárt að binda.“

Eyðileggja mat í staðinn fyrir að gefa

Eins og staðan er í dag beita stór­mark­aðir með­vitað aðferðum til þess að koma í veg fyrir að matur, sem er kom­inn fram yfir síð­asta sölu­dag, nýt­ist öðrum, jafn­vel þótt hann sé vel ætur. Á sama tíma glímir hluti frönsku þjóð­ar­innar við hungur. Fjallað hefur verið um það í frönskum fjöl­miðlum hvernig fátækar fjöl­skyldur, nemar, atvinnu­lausir og heim­il­is­lausir róta að næt­ur­þeli í ruslagámum stór­mark­aða til að afla sér fæðu. Fæðan sem hent er af stór­mörk­uðum er gjarnan vel æt, þrátt fyrir að síð­asta sölu­degi sé náð. Margir stór­mark­aðir grípa til sér­stakra aðferða við að koma í veg fyrir að fólk geti nýtt sér útrunna mat­inn með því að læsa útrunna mat­inn inni í vöru­húsum áður en hann er sóttur af flutn­inga­bílum til að flytja í eyðslu, eða nota klór til að koma í veg fyrir að fólk borði hann - og þar með koma í veg fyrir mögu­lega mat­ar­eitrun.

Yfir tíu milljónir í sekt við brotum

Samkvæmt nýju lög­unum liggur refs­ing við því að stór­mark­aðir sem eru stærri en 400 fer­metrar hendi matnum í stað þess að gefa hann til góð­gerð­ar­fé­laga eða nýta hann í dýra­fóður. Útfærslan felst í því að stór­mark­aðir verða að semja við góð­gerð­ar­fé­lög fyrir júlí á þessu ári. Refs­ingin við því að brjóta lögin getur numið sekt yfir 10 millj­ónum króna,  eða jafn­vel tveimur árum í fang­elsi.

„Það er skandall að klór sé hellt yfir ætan mat.“

„Það er skandall að klór sé hellt yfir ætan mat í rusla­tunnum stór­mark­að­anna,“ sagði þing­maður Sós­í­alista, Guillaume Garot, sem lagði fram frum­varpið.

Hungur þrátt fyrir allsnægtir
Hungur þrátt fyrir allsnægtir Á Íslandi, eins og í Frakk­landi, er komið í veg fyrir að matur sé nýttur eftir síð­asta sölu­dag.

Tuttugasti hver Íslendingur lendir í matarþurrð

Samkvæmt rann­sókn Capacent árið 2012 fékk tuttug­asti hver Íslend­ingur eða fjöl­skylda hans ekki nóg að borða ein­hvern tím­ann und­an­gengið ár. Hjá einu pró­senti, yfir þrjú­þús­und manns, kom það oft fyrir.

Stundin hefur fjallað um veru­leika þeirra sem lifa við mat­ar­skort á sama tíma og mat er hent hjá stór­mörk­uð­unum. Á Íslandi læsa stór­mark­aðir einnig gámum með útrunnum mat til að koma í veg fyrr að hann nýt­ist fólki í fjár­þurrð, enda getur það minnkað hagnað þeirra. Greinina, „Hungruð í landi allsnægt­anna“, má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hungruð í landi allsnægtanna

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár