Fótboltastelpum mismunað í Kópavogi

Strákalið Breiða­bliks fékk að keppa úrslita­leik á Kópa­vogs­velli í fyrra en í ár fá stelp­urnar það ekki. „Mér finnst að Kópa­vogs­bær eigi að skamm­ast sín,“ segir þjálf­ari.

Fótboltastelpum mismunað í Kópavogi
5. flokkur kvenna Myndin eru frá árunum 2010 til 2011. Mynd: Breiðablik

Fimmti flokkur stúlkna­liðs Breiða­bliks fékk ekki að keppa úrslita­leik sinn á Kópa­vogs­velli í ár, þótt drengjalið sama flokks hjá Breiða­bliki hafi fengið að spila úrslita­leik sinn á vell­inum í fyrra.

Margrét María Hólmars­dóttir, þjálf­ari 5. flokks kvenna hjá Breiða­blik, gagn­rýnir þetta harð­lega og segir þetta vera mis­munun.

Þjálfari 5. flokks kvenna
Þjálfari 5. flokks kvenna Margrét María Hólmars­dóttir skrifar harð­orða pistil á Facebook-síðu sína.
 

„Ég vona í fram­tíð­inni, að Kópa­vogs­bær end­ur­skoði þessi vinnu­brögð sín og vinni frekar með félag­inu heldur en á móti því. Finnst mér þetta hreint út sagt til hábor­innar skammar fyrir Kópa­vogsbæ og er þetta engum til fram­dráttar. Ég vil líka bara að þessir menn viti það að stelp­urnar finna alveg fyrir þess­ari mis­munun. Þær skilja ekki af hverju mótherjar þeirra fá að spila á sínum aðal­velli en þær fá það ekki,“ skrifar Margrét María á Facebook.

„Stelp­urnar finna alveg fyrir þess­ari mis­munun.“

Leik­irnir fóru fram í gær ann­ars vegar á gervi­gras­velli Breiða­bliks, Fífunni, og hins vegar velli Víkings. For­stöðu­maður Kópa­vogs­vallar er Ómar Stef­áns­son, fyrrum bæj­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins. 

Ómar þver­tekur fyrir að fót­bolta­stúlkum sé mis­munað í Kópavogi og bendir hann á töl­fræði um leiki stúlkna á vell­inum máli sínu til stuðn­ings.

„Töl­fræðin sýnir það algjör­lega að sein­ustu ár höfum við leyft fleiri kvenna­leiki en karla­leiki á Kópa­vogs­velli,“ segir Ómar. Hann segir að hjá Kópa­vogs­velli hafi verið vinnu­regla að öðrum til fjórða flokk sé boðið að spila úrslita­leik á Kópa­vogs­velli. Yngri liðum hefur þó ekki verið boðið.

„Við bjóðum upp á frá­bæra aðstöðu á úti­svæðum. Núna var sagt nei. Í fyrra gerðum við mis­tök og ég tek það á mig, að hafa leyft einn leik fimmta flokks karla. Í fyrra vorum við með þrjá leiki í kvenna­flokk­unum, tvo í öðrum flokki kvenna og einn leik í fjórða flokk. Síma­mótið, þar sem þessi ald­urs­hópur er að keppa, fer fram á Kópa­vogs­velli,“ segir Ómar. 

Draumur hjá stelpunum að spila á vellinum

Margrét María bendir á að stelp­urnar hafi dreymt um að fá að spila á Kópa­vogs­velli, líkt og eldri fyr­ir­myndir þeirra.

„Árið 2014 komst 5. flokkur karla hjá Breiða­blik í úrslita­leik Íslands­móts­ins og fengu þeir það frá­bæra tæki­færi að spila úrslita­leik sinn á Kópa­vogs­velli. Það er draumur allra yngra iðk­enda að fá að spila á aðal­velli félags­ins.

Árið 2015 komst 5. flokkur kvenna hjá Breiða­blik í úrslita­leik bæði í A og B liðum. Var strax farið í það að leit­ast eftir því að fá að spila leik­ina á frá­bærum Kópa­vogs­velli. Var það svo að KSÍ setti leik­inn hjá bæði A og B liðum á Kópa­vogs­völl. Með þessu var draumur hjá stelp­unum að fara að ræt­ast. Stelp­urnar höfðu mætt á hvern ein­asta leik hjá meist­ara­flokki kvenna og dáðst af fyr­ir­myndum sínum spila á þessum frá­bæra velli og gátu ekki beðið eftir því að fá að spila einn leik á þessum velli,“ skrifar María.

„Við urðum því hreint út sagt mjög hissa þegar Kópa­vogs­bær ákvað að banna stelp­unum að spila sína úrslita­leiki á vell­inum.“

Undanþága vegna nágrannaslags

Að sögn Mar­grétar Maríu bera yfir­menn Kópa­vogs­vallar fyrir sér þau rök að leikur drengj­anna í fyrra hafi verið nágranna­slagur og því mik­il­væg­ari. „Þar sem Kópa­vogs­völlur er í eigu Kópa­vogs­bæjar var það í höndum þeirra að gefa leyfi á að leik­irnir yrði spil­aðir á vell­inum. Þar sem strák­arnir fengu að spila sinn úrslita­leik á vell­inum árið 2014, þá héldum við að það ætti ekki neitt að vera því til fyr­ir­stöðu að stelp­urnar fengju að spila sína úrslita­leiki á vell­inum. Við urðum því hreint út sagt mjög hissa þegar Kópa­vogs­bær ákvað að banna stelp­unum að spila sína úrslita­leiki á vell­inum. Þegar það var borið upp að strák­arnir hefðu fengið að spila úrslita­leik þarna í fyrra og því ætti það nú að vera borð­leggj­andi að stelp­urnar fengju það líka voru svörin á þá leið að í fyrra hafi þetta verið „Derbý-slagur“ (Breiða­blik-HK) hjá strák­unum og því hafi þeir fengið und­an­þágu í þetta eina skipti,“ skrifar Margrét María.

Auk þessa hafi þau rök verið notuð að mann­ekla sé hjá vall­ar­starfs­mönnum og erfitt að kalla út starfs­fólk á sunnu­degi til að und­ir­búa völl­inn fyrir leik­inn.

„Mér finnst að Kópa­vogs­bær eigi að skamm­ast sín fyrir þessi vinnu­brögð.“

Kópavogsbær eigi að skammist sín

Margrét María segir að lokum að vinnu­brögð hjá Kópa­vogsbæ séu for­kast­an­leg. „Mér finnst að Kópa­vogs­bær eigi að skamm­ast sín fyrir þessi vinnu­brögð. Með þess­ari ákvörðun sinni, hvort sem þeim líkar það betur eða verr, er verið að mis­muna kynjum. Þetta eru börn sem eru jafn gömul, leggja jafn mikla vinnu á sig og eiga jafn mikið skilið að spila á aðal­velli félags­ins. Það er ekki hægt að segja stelp­unum okkar það, að ástæða þess að þær fá ekki að spila á vell­inum sé sú að þetta sé ekki „Derbý-slagur“,“ skrifar Margrét María.

Formaður íþróttaráðs
Formaður íþrótta­ráðs Jón Finn­boga­son skrifar í athuga­semd að hann muni kalla eftir skýrum svörum frá Kópa­vogs­velli.
 

Íþróttaráð mun kalla eftir svörum

Jón Finn­boga­son, for­maður íþrótta­ráðs og vara­bæj­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks, tekur undir orð Mar­grétar Maríu í athuga­semd við stöðu­færslunna. Hann seg­ist hafa beitt sér innan ráðs­ins en allt hafi komið fyrir ekki. „Tek undir hvert orð hjá Margréti Maríu. Seint á fimmtu­dag heyrði ég af þess­ari ákvörðun. Íþrótta­ráð hefur hingað til ekki fjallað um ein­staka leiki á Kópa­vogs­velli. Engu að síður þótti mér sem for­manni íþrótta­ráðs hér fullt til­efni til að gera stjórn­endum Kópa­vogs­bæjar grein fyrir van­þóknun minni á þeirri ákvörðun sem tekin hafði verið. Athuga­semdir mínar höfðu engin áhrif og ákvörð­un­inni var ekki haggað. Eitt er þó á hreinu, íþrótta­ráð mun kalla eftir skýrum svörum og gera sitt til að tryggja að svona mis­munun end­ur­taki sig aldrei aftur,“ skrifar Jón.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár