Foreldrar og börn á hjólum í óbyggðum

Gamla reið­hjólið dregið fram. Tölvur og far­símar fjarri. Róbert Marshall og Bryn­hildur Ólafs­dóttir hjóla um allt.

Foreldrar og börn á hjólum í óbyggðum
Fjöl­skyldan Róbert og Bryn­hildur í hjóla­ferð í Taílandi með börnum sínum. Mynd: Úr einkasafni.

Ung­lingar eiga að ráða vel við báðar þessar ferðir og þetta er ágæt leið til þess að draga þá út,“ segir Róbert Marshall, far­ar­stjóri og þing­maður, um hjóla­ferðir  sem hann og Bryn­hildur Ólafs­dóttir, far­ar­stjóri og kona hans, fara í sumar undir merki Ferða­fé­lags Íslands. Þau hafa áður farið með hópa um óbyggðir á reið­hjólum. Þá hafa þau verið dug­leg við að fara með börn sín í hjóla­ferðir heima og erlendis. 

Hjóla­ferð­irnar þykja að mörgu leyti til­valdar til þess að for­eldrar og ung­lingar nái saman utan áreitis tölvu og far­síma. Þá er ekki verra að þetta er ódýrt sport. Flestir eiga fjalla­hjól í notkun eða í geymslu sem þeir geta þá dustað rykið af. Það þarf ekki fok­dýr hjól til þess að fara í fjalla­leið­angur.  

„Fjalla­hjólin þurfa ekki að vera ný en ég ráð­legg fólki að láta yfir­fara þau á verk­stæði fyrir svona ferð. Það kemur oft fyrir að keðjur slitna og dekk springa og þá er gott að hafa vara­hluti,“ segir Róbert. 

Hjólafólk
Hjóla­fólk Hér er hluti af hópi Róberts og Bryn­hildar í óbyggðum á hjólum sínum.

Róbert segir að þau hjónin fari í tvær hjóla­ferðir í sumar sem far­ar­stjórar. Annars vegar er það Lauga­hjóla­veg­ur­inn þar sem farin er óhefð­bundin leið að fjalla­baki í Þórsmörk og svo áfram út úr Þórs­mörk­inni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu