Ferðamaður á yfir höfði sér tveggja ára fangelsi fyrir að móðga Búdda

Hol­lend­ing­ur­inn Klaas Haytema hafði fengið nóg af hávað­anum úr hátal­ara sem not­aður var til að útvarpa athöfn búddista í Búrma. Hann tók magnar­ann úr sam­bandi, var í kjöl­farið umset­inn á hót­eli sínu af æstum múg og bjargað af hernum. Hann hefur nú verið ákærður og á yfir höfði sér allt að tveggja ára fang­elsi.

Ferðamaður á yfir höfði sér tveggja ára fangelsi fyrir að móðga Búdda
Búdda­munkar í Búrma hafa orðið sífellt rót­tæk­ari á und­an­förnum árum.

Hol­lenskur rík­is­borg­ari sem fór til Búrma lenti heldur illa í því þegar hann ákvað að taka úr sam­bandi magn­ara sem búdda­munkar nota til þess að útvarpa athöfnum sínum. Fyrir vikið gæti hann endað í allt að tveggja ára fang­elsi. 

Hinn 30 ára gamli Klaas Haytema frá Wans í Hollandi var á mánu­dag ákærður fyrir að móðga trú­ar­brögðin með gjörðum sínum, sem sagðar eru hafa truflað trú­ar­há­tíð. Þetta kemur fram í The Myanmar Times.

Búrma er að mestu gríð­ar­lega íhalds­söm þjóð, þar sem bróð­ur­partur lands­manna aðhyllist búddasið.

„Hann sagði að klukkan hefði verið of margt fyrir svona háværa athöfn og hann var í miklu upp­námi út af því.“

Atvikið átti sér stað þann 23. sept­em­ber fyrir utan hótel þar sem Haytema dvaldi, nálægt trú­ar­legum sam­komu­stað í bænum Maha Aung Myay. Í kjöl­far þess hóp­að­ist reiður múgur að hót­el­inu og krafð­ist þess að mað­ur­inn gæfi sig fram. Hermenn náðu þó að grípa inn í og komu í veg fyrir að múg­ur­inn gerði honum mein. Fólkið yfir­gaf ekki svæðið fyrr en stjórn­völd full­vissuðu þau um að gripið yrði til aðgerða vegna gjörða Haytema, sam­kvæmt Hla Myint, yfir­manni innan lög­regl­unnar.

„Útlend­ing­ur­inn hefur verið í haldi lög­reglu vegna þess að Útlend­inga­stofnun og einn trú­ar­leið­tog­anna hafa ákveðið að kæra,“ sagði Hla einnig. Hann sagði Hol­lend­ing­inn hafa játað meint brot og borið því við að hann hefði tekið magnar­ann úr sam­bandi vegna þess að lætin komu honum úr jafn­vægi. „Hann sagði að klukkan hafi verið of margt fyrir svo háværa athöfn og hann hefði verið í miklu upp­námi út af því.“

Dreifibréfið
Dreifi­bréfið sem Ný-Sjá­lend­ing­ur­inn og sam­starfs­menn hans voru fang­els­aðir fyrir

Maðurinn sem var að stýra athöfn­inni þegar atvikið átti sér stað, U Kyaw San, er sá hinn sami og lagði kæruna inn. Haytema er nú í fang­elsi á meðan rann­sókn fer fram á því hvort hann hafi móðgað trú­ar­legar til­finn­ingar og sann­fær­ingu fólks og farið á svig við inn­flytj­enda­lög­gjöf lands­ins.

Fleiri ferðamenn óvart móðgandi

Ferða­menn í land­inu hafa áður lent illa í því að sýna trú­ar­brögð­unum ekki næga virð­ingu, en í Burma er móðgun við búdd­isma álitin alvar­legur glæpur. Í júlí var spænskur ferða­maður fluttur úr landi eftir að hafa sést á vin­sælum ferða­manna­stað með húð­flúr með mynd af Búdda á fæt­inum.

Húðflúrið
Húð­flúrið sem spán­verj­inn var fluttur úr landi vegna

Ný-sjá­lenski rík­is­borg­ar­inn Philip Blackwood var einnig dæmdur í mars árið 2015 fyrir að móðga búdd­isma eftir að aug­lýs­ingu fyrir skemmti­stað sem hann rak, þar sem Búdda var sýndur með heyrna­tól, var dreift á Facebook. Var hann dæmdur í tveggja ára og sex mán­aða fang­elsi, ásamt eig­anda bars­ins og rekstr­ar­stjóra, sem báðir eru búrmískir rík­is­borg­arar.

Hafa þjóð­ern­is­sinnar lands­ins í auknum mæli notað búdd­isma í þágu síns mál­staðar. Hefur það bitnað veru­lega á öðrum trú­ar­brotum, svo sem múslimum og hindúum, sem telja um 5% lands­manna. Er komið fram við þá eins og ann­ars flokks þegna og hefur kerf­is­bundið verið litið fram hjá órétti og ofbeldi sem þeir eru beittir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Óvissa um tekjuforsendur samgöngusáttmálans
5
StjórnmálSamgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins

Óvissa um tekju­for­sendur sam­göngusátt­mál­ans

Óvissa virð­ist ríkja um marga lyk­il­þætti í fjár­mögnun sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri segir það áhyggju­efni að nið­ur­skurður á fjár­lögum muni auka lán­töku­þörf Betri sam­gangna á sama tíma. Hún segir ekki hægt að ráð­ast í fram­kvæmdir sem ekki hafi verið fjár­magn­aðar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár