Farþegaflugvel fórst í góðu veðri í frönsku Ölpunum: 148 taldir af

Vefsíða flug­fé­lags­ins legið niðri. Ekki er vitað um Íslend­inga um borð.

Farþegaflugvel fórst í góðu veðri í frönsku Ölpunum: 148 taldir af

Talið er að 148 manns hafi farist þegar far­þega­flug­vél brot­lenti í frönsku Ölpunum fyrir skömmu. Vélin var á leið­inni frá Barcelona til Dus­seldorf og er af gerð­inni Airbus A320. Brak úr vél­inni hefur fund­ist í fjalla­þorp­inu Barcelonette sem er nærri slys­staðnum. Vélin fór af stað kl. 10 að stað­ar­tíma en flug­menn vél­ar­innar sendu út neyð­ar­kall kl. 10:47. Vélin hvarf síðan af rat­sjám kl. 11:20. 

Vélin er í eigu lággjalda­flug­fé­lags­ins Germanwings en fyr­ir­tækið hefur enn ekki stað­fest fregnir af slys­inu. Vefsíða flug­fé­lags­ins hefur legið niðri í morgun en aðstand­endur eru beiðnir um að fylgj­ast með fréttum á Twitter-síðu Germanwings.

Samkvæmt sjón­ar­vottum voru veð­ur­skil­yrði góð þegar slysið varð. Tildrög slyss­ins eru enn ókunn. 

Slysstaðurinn
Slys­stað­ur­inn

Samkvæmt frétt á Kjarn­anum hefur utan­rík­is­ráðu­neyti Íslands haft sam­band við sendi­ráð Íslands í Berlín og París vegna slyss­ins. Enn eru engar upp­lýs­ingar um það hvort Íslend­ingar hafi verið um borð í vél­inni. 

Flugleið vélarinnar
Flugleið vél­ar­innar

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár