Fáir mættu í þingveislu sem boðað var til í Bændahöllinni í kvöld. Rúmlega 50 þingmenn og makar höfðu boðað komu sína en heimildamaður Stundarinnar taldi að mun færri hefðu mætt til samkomunnar sem hófst klukkan 19 í kvöld. Nokkrir mótmælendur sátu fyrir spariklæddum gestunum sem skörtuðu sínu besta.
UmdeildVaraþingmaðurinn og borgarfulltrúinn, Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, geislaði af gleði og þokka. Hjá henni er stund milli stríða eftir harkaleg átök í borgarstjórn.
Mynd: pressphotos.biz
Fyrrverandi og núverandiHjónin Páll Pétursson, fyrrverandi ráðherra, og Sigrún Magnúsdóttir, núverandi ráðherra. Einsdæmi að hjón gegni ráðherraembættum.
Vel fór þó á með hópunum sem spjölluðu saman í góðu. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands, gaf sig á tal við mótmælendur sem vildu að hann beitti sér fyrir lýðræðisumbótum með vísan til framgöngu utanríkisráðherra.
Forsetinn tók ábendingunni vel en áréttaði að hann hefði í gegnum tíðina lagt sitt af mörkum til lýðræðisumbóta.
Ýttu á + við höfund, fréttamál eða greinaröð til að fylgja því og fá tölvupóst þegar eitthvað nýtt kemur, einn á dag í mesta lagi. Því sem þú fylgir stjórnarðu á Minni síðu.
Athugasemdir
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Athugasemdir