Ekki til skoðunar að biðja ástandskonur afsökunar vegna meyjarhaftsrannsókna

Íslenskar konur voru beittar harð­ræði í rann­sóknum á mögu­legu sam­neyti þeirra við erlenda her­mann á ástandsár­unum. Þær hafa ekki fengið afsök­un­ar­beiðni eða bætur, ólíkt Breiða­vík­ur­drengjum.

Ekki til skoðunar að biðja ástandskonur afsökunar vegna meyjarhaftsrannsókna
Inn­an­rík­is­ráð­herra Ólöf Nordal, eða inn­an­rík­is­ráðu­neyti hennar, hafa ekki borist beiðnir um aðkomu að málum kvenna sem voru beittar harð­ræði í rann­sóknum á mögu­legu sam­neyti íslenskra kvenna við erlenda her­menn á stríðs­ár­unum. Mynd: Pressphotos

Ekkert form­legt erindi hefur borist inn­an­rík­is­ráð­herra um upp­töku á málum ástands­kvenna og mun ráðu­neytið því ekki skoða þau sér­stak­lega, að svo stöddu. 

Þetta kemur fram í svari ráðu­neyt­is­ins við spurn­ingum blaða­manns frá í síð­ustu viku.

Meyjarhaftsrannsóknir á stúlkum

Í nýjasta tölu­blaði Stund­ar­innar er fjallað sér­stak­lega um „ástandið“ og fjallað er um þá hörku og óhóf­legu vald­beit­ingu sem konur urðu fyrir af hendi yfir­valda. Í stuttu máli segir þar frá þeim umfangs­miklu per­sónunjósnum og þving­unum sem konur sættu af hendi lög­reglu­kon­unnar, Jóhönnu Knudsen og ung­dóms­eft­ir­liti hennar. 

Umfjöll­unin styðst við heim­ildir frá yfir­heyrslum, dómum og rann­sókn­ar­að­ferðum sem draga upp afar svarta mynd af með­ferð ungra kvenna. Meðal ann­ars er þar um að ræða afar grófar lýs­ingar á yfir­heyrslum auk máls­með­ferða Ung­menna­eft­ir­lits­ins á nafn­greindum konum.

Dæmi eru um þving­anir þar sem stúlk­urnar/kon­urnar voru sendar nauð­ugar í lækn­is­skoð­anir til að athuga hvort meyj­ar­haft þeirra væri rofið til að sanna eða afsanna mætti „sekt“ þeirra. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár