Einn handtekinn: „Ég var mjög vonsvikinn“

Björgvin Þór Hólm, framkvæmda­stjóri úr Garðabæ, var hand­tekinn af lögreglu þegar hann gerði eins manns áhlaup á Alþingis­húsið. Hann varð fyrir vonbrigðum með að mótmælendur skyldu ekki sýna borgara­lega óhlýðni.

Yfirveguð aðgerð borgaralegrar óhlýðni
Yfir­veguð aðgerð borg­ara­legrar óhlýðni Björgvin var rólegur og yfir­veg­aður, en ákvað að hlaupa undan þegar hann sá lög­reglu­menn ráð­ast að sér. Mynd: E.Ól.

Þegar Björgvin Þór Hólm, miðaldra framkvæmda­stjóri úr Garðabæ, lagði af stað í miðbæ Reykja­víkur seinni partinn í gær var hann búinn að ákveða að láta handtaka sig.

Björgvin Þór er eini mótmælandinn sem var hand­tekinn í mótmælum á Austur­velli í gær, eftir að hann fór yfir varnar­girðingu lögreglu og hljóp undan henni. 

Björgvin er knúinn áfram af sterkri réttlætis­kennd og þeirri skoðun að verið sé að „ræna þjóðina“. Hann stóð á meðal mótmælenda í gær, andspænis dyrunum að Alþingis­húsinu, en á bakvið járn­girðingu sem lögreglan hafði sett upp. Mótmælendur hristu lykla og trommuðu á járn­girðingarnar. Björgvin stendur í þeirri trú að þing­mennirnir inni í húsinu starfi fyrir auðvald fremur en almenning. Honum þóttu viðbrögð mótmælenda ekki í samræmi við það.

Meðvituð aðgerð

„Þetta var með ráðum gert, ég ætlaði að sýna borgara­lega óhlýðni,“ segir Björgvin í samtali við Stundina. „Ég var í mótmælenda­hópnum og segi við vin minn sem stendur þarna: „Jæja, best að fara að láta handtaka sig.“ Stekk svo yfir girðinguna, labba að dyrunum  og stend þar og bíð eftir lögreglu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár