Segir Hildi Lilliendahl veika: „Ég mun biðja fyrir þér“

Hildur Lilli­endahl birtir skjá­skot af skila­boðum sem Jón Gunnar Sæv­ars­son sendi henni í hádeg­inu. Jón Gunnar er eig­andi Orange Project félags sem sér­hæfir sig í leigu á skrif­stofum. Félagið býður jafn­framt upp á almanna­tengsl.

Segir Hildi Lilliendahl veika: „Ég mun biðja fyrir þér“

„Góðan dag­inn og gleði­legt nýtt ár. Ég mun biðja fyrir þér, þú ert greini­lega mikið veik. b.kv. JGS,“ segir Jón Gunnar Sæv­ars­son, eig­andi almanna­tengsla­fé­lags­ins og skrif­stofu­hót­el­anna Orange Project  í skila­boðum til Hildar Lilli­endahl í hádeg­inu.

Skilaboðin „upp úr þurru“

Rekur almannatengslaþjónustu
Rekur almanna­tengsla­þjón­ustu Jón Gunnar Sæv­ars­son vildi ekki tjá sig um skila­boð til Hildar Lilli­endahl.

Hildur segir engan aðdrag­anda að þessum skila­boðum. „Engin for­saga mér vit­an­lega. Þetta kom bara núna í hádeg­inu upp úr þurru. Jóla­and­inn eða eitt­hvað,“ segir Hildur. Jón Gunnar vildi ekk­ert tjá sig um málið. „Já, hvað með það? Það er bara no comment,“ svar­aði Jón Gunnar spurður um hvers vegna hann hafi ákveðið að senda þessi skila­boð.

Stuttu eftir sam­talið sendi Jón Gunnar blaða­manni tölvu­póst. „Ert þú með aðgang að einka­skila­boðum Hildar?“ spurði hann.

Helsta starf­semi félags Jóns Gunnars er leiga skrif­stofu­rýmis til ein­yrkja og minni félaga. Auk þess býður það upp á ýmsar „lausnir“ fyrir félög svo sem bók­halds­þjón­ustu, rit­ara- og lög­fræði­þjón­ustu sem og almanna­tengsl.

„Þarftu að ná til fjöld­ans? Vekja á þér athygli? Kynna nýja vöru eða þjón­ustu? Standa vörð um ímynd þína? Ná tökum á nei­kvæðri umræðu eða vekja athygli á ein­hverju jákvæðu?

„Í þessum efnum vitum við upp á okkar tíu fingur hvað við erum að gera.“

Sam­an­lögð reynsla starfs­fólks Orange Project við fjöl­miðla, mark­aðs­setn­ingu og ímynd­ar­vinnu hleypur á ára­tugum. Í þessum efnum vitum við upp á okkar tíu fingur hvað við erum að gera og höfum yfir að ráða gríð­ar­lega umfangs­miklu tengsla­neti,“ segir í lýs­ingu á starf­sem­inni.

Hildur hefur vakið mikla athygli und­an­farin ár bæði vegna ummæla sem aðrir hafa látið falla um hana sem og ummæli sem hún sjálf hefur látið falla. Árið 2012 bjó hún til síð­una Karlar sem hata konur á Facebook þar sem hún tók saman ummæli sem hún taldi vera fjand­sam­leg konum. Í kjöl­far þess varð hún ein umtal­að­asta kona Íslands og fékk fjölda hat­ur­s­pósta. Árið 2014 greindi Hafdís Huld frá því að hún hafi orðið fyrir ein­elti Hildar á net­inu. 

Ásökun um ófrægingarherferð

Einn starfs­manna Orange Project hefur eldað grátt silfur við Hildi um nokk­urt skeið. Nú síð­ast í sumar greindi DV frá því að hann hefði skrifað stöðu­færslu þar sem hann sak­aði Hildi um að vera í ófræg­ing­ar­her­ferð gegn sér. 

„Æsku­ástin mín, fyrsta eig­in­konan mín og móðir tveggja elstu barna minna var að segja mér að það sé smear campaign í gangi gegn mér og Führer Hildur Lilli­endahl sé að safna sögum um mig. Go crazy maðafakkass. Setjum einn morð­ingja­hamar í haus­inn á mér í leið­inni,“ skrif­aði starfs­mað­ur­inn í sumar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár