„Ég vil vinna á Íslandi en ég vil líka fá almennileg laun“

Hjúkrunar­fræðingar greiða atkvæði um verkfall. Hjúkrunar­fræðingur með tæplega 335 þúsund krónur á mánuði íhugar að flytja til Noregs. Ófremdar­ástand hefur verið á Land­spítala í fimm vikur vegna verkfalla.

Helga María Guðmundsdóttir
Helga María Guð­munds­dóttir

Nú stendur yfir atkvæða­greiðsla meðal hjúkrunar­fræðinga um verkfall en niður­stöðu er að vænta á mánudag. Verði það samþykkt munu hjúkrunar­fræðingar fara í verkfall miðvikudaginn 27. maí náist ekki samningar fyrir þann tíma. Helga María Guðmunds­dóttir hefur starfað í sjö ár á Land­spítalanum. Grunn­launin hennar eru 334.865 krónur. Hún er ein þeirra sem ætlar að greiða atkvæði með verkfalli. 

„Þetta er skref sem enginn hjúkrunar­fræðingur vill taka. Við vitum alveg hversu mikil áhrif þetta mun hafa á spítalann og ég tala nú ekki um þegar fleiri stéttir eru í verkfalli á sama tíma. En það er líka þreytandi að standa í kjara­viðræðum þetta lengi og við sitjum alltaf á hakanum,“ segir hún í samtali við Stundina, en Helga María skrifaði einnig grein um málið í Frétta­blaðið í dag. 

Alvarleg staða á Landspítala

Ófremdar­ástand hefur verið á vinnustað Helgu Maríu, Land­spítalanum, á undan­förnum vikum. Geisla­fræðingar, lífeinda­fræðingar og ljósmæður hafa verið í verkfalli síðan 7. apríl og er fátt sem bendir til þess að deilan sé að leysast. Vegna verkfalla hefur þurft að fresta fjölda rannsókna og aðgerða. Ljóst er að verk­fallið ógnar verulega öryggi sjúklinga en einungis bráða­tilfellum er sinnt. 

Hjúkrunar­fræðingar og annað starfs­fólk spítalans hafa því fundið fyrir auknu álagi síðustu vikur, fyrir utan þær afleiðingar sem verk­fallið hefur þegar haft á sjúklinga og aðstand­endur. Verkfalls­aðgerðirnar hafa komið sérstak­lega illa við bráða­móttöku Land­spítalans og hafa sjúklingar meðal annars þurft að bíða klukku­tímum saman eftir niður­stöðum úr röntgen­myndatöku. „Við erum eitt púsluspil. Ef það vantar eitt þá erum við ekki ein heild. Við þurfum öll að vinna saman,“ útskýrir Helga María. 

Í miðju verkfalli kom það upp að annað tölvu­sneiðmynda­tæki Land­spítalans bilaði og því þurfti að flytja alla sjúklinga sem lágu inni á spítalanum í Fossvogi yfir á Hringbraut til þess að komast í rann­sóknir. „Þetta ástand stóð yfir í nokkra daga og þetta hefur komið fyrir áður. Það var töluverð umræða um þetta fyrir nokkrum árum, en þetta var ekkert í umræðunni núna. Fólk er kannski bara orðið vant þessu ástandi og þetta þykir ekki fréttnæmt lengur,“ segir Helga María.  

„Við viljum auðvitað fylgja fordæmi þeirra og vorum auðvitað mjög ánægð með að þeir skyldu fá leið­réttingu á launum sínum.“

Verkfalls­hrinan á Land­spítalanum hófst með verkfalli lækna síðasta haust. Þeirri deilu lauk með kjara­samningi sem fól í sér um tuttugu prósenta launa­hækkun lækna. „Við viljum auðvitað fylgja fordæmi þeirra og vorum auðvitað mjög ánægð með að þeir skyldu fá leið­réttingu á launum sínum,“ segir Helga María. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjaradeilur 2015

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár