Danskur blaðamaður ósáttur við íslenskan fjölmiðil: „Ég hata hálfvita, sem stela án þess að skammast sín“

Jakob Sheikh, blaða­maður Politi­ken í Danmörku, fer hörðum orðum um Eyjuna.is og seg­ist óska fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu dauða. Grein hans var birt nán­ast orð­rétt á Eyjunni án þess að greitt væri fyrir vinn­una.

Danskur blaðamaður ósáttur við íslenskan fjölmiðil: „Ég hata hálfvita, sem stela án þess að skammast sín“
Útgef­andi Eyjunnar Björn Ingi Hrafns­son er útgef­andi og aðal­eig­andi Vef­pressunnar, sem gefur út Eyjuna.is.

Blaða­maður danska blaðs­ins Politi­ken, Jakob Sheikh, er ósáttur við það sem hann nefnir „rit­stuld“ íslensks fjöl­mið­ils, Eyjunnar.is. Hann fer hörðum orðum um mið­il­inn á Facebook.

Grein Jakobs um hvernig ungt fólk breyt­ist í öfga­menn og gengur til liðs við bar­áttu Íslamska rík­is­ins var birt nán­ast í orð­réttri þýð­ingu á Eyjunni í sept­em­ber í fyrra. Samkvæmt full­yrð­ingu Jakobs neit­uðu for­svars­menn Eyjunnar beiðni lög­manna hans um að taka grein­ina út. 

„Vanalega er ég glaður þegar útlenskir fjöl­miðlar byggja á sögu sem ég hef skrifað. Bara ekki þegar þeir stela vinn­unni minni – orð fyrir orð – án þess að borga fyrir notkun á höf­und­ar­rétt­vörðu efni. Frá síð­asta hausti hefur vinnu­veit­andi minn, Politi­ken, og nokkrir lög­fræð­ingar til dæmis staðið í bar­áttu við þennan íslenska skíta­miðil til að fá hann til að borga fyrir að nota þessa grein sem ég skrif­aði – eða í minnsta lagi að fá þá til að taka hana af síð­unni þeirra. 

„Mér finnst þetta mál skipta máli fyrir umræð­una um fjöl­miðla fram­tíð­ar­innar“

Venju­lega stend ég ekki í þess lags orr­ustum, en mér finnst þetta mál skipta máli fyrir umræð­una um fjöl­miðla fram­tíð­ar­innar. Því hér er það sem Íslend­ing­arnir segja um þjófn­að­inn á minni vinnu: „Við vitum vel að við stelum vinn­unni þinni án þess að borga fyrir það. En þú getur ekki komið á eftir okkur. Það er of mikið vesen. Og við vitum það vel. Þetta er hluti af við­skipta­mód­el­inu okkar.“

Við höfum nú sleppt mál­inu – það var ekki erf­ið­is­ins virði, er mér sagt. En ég hata hálf­vita, sem stela án þess að skamm­ast sín. Megi fjöl­miðla­fyr­ir­tækið ykkar hrynja til grunna eins hratt og mögu­legt er.“

Eyjan.is er gefin út af Vef­press­unni ehf. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Eyjunni er verið að fara yfir málið. Undir grein­inni hefur því hins vegar verið bætt við að hún byggi á grein Jakobs sem birt var í Politi­ken. 

Uppfært kl. 12.25. 

Í athuga­semd frá rit­stjóra Eyjunnar, Magnúsi Geir Eyj­ólfs­syni, segir að birt­ing grein­ar­innar hafi verið mis­tök blaða­manns, greinin hafi verið fjar­lægð af vefnum og Jakob beð­inn afsök­unnar. „Ég er sam­mála Jakobi að þarna hafi verið gengið of langt og þetta skrif­ast ein­fald­lega á mis­tök blaða­manns á sínum tíma, sem í stað þess að end­ur­segja frétt­ina líkt og íslenskir fjöl­miðlar hafa gert árum saman ein­fald­lega tekur hana orð­rétt upp. Þetta er ein­stakt til­felli og alls ekki í sam­ræmi við okkar starfsvenjur. Við tökum gagn­rýni Jakobs mjög alvar­lega og höfum bæði fjar­lægt grein­ina af vefnum og beðið hann per­sónu­lega afsök­unar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár