Breiðfylking gegn Hönnu Birnu

Miklar líkur eru á fram­boði Ólafar Nordal til vara­for­manns. Ást­hildur Sturlu­dóttir er ein­dreg­inn stuðn­ings­maður Ólafar. Elín Hirst vill að Hanna Birna fari af þingi. For­mað­ur­inn sagður styðja Ólöfu.

Breiðfylking gegn Hönnu Birnu
Stórsókn og und­an­hald Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra hefur sagt að hún sé að hugsa málið varð­andi fram­boð. Hún nýtur breiðs stuðn­ings innan flokks­ins og þykir lík­leg til að bæta ásýnd hans. Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vill gefa kost á sér áfram í emb­ætti. Margir innan flokks­ins eru á öðru máli. Mynd: Innanríkisráðuneytið

Vaxandi þrýst­ingur er innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins á Ólöfu Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra að bjóða sig fram til vara­for­mennsku í flokknum og ýta þannig Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, til hliðar. Heim­ildir Stund­ar­innar herma að stuðn­ings­menn Ólafar meti það svo að miklar líkur séu á því að hún bjóði sig fram. „Líkurnar eru yfir­gnæf­andi,“ sagði einn sam­herja hennar. Þunga­vigt­ar­maður innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins sagði aug­ljóst að Ólöf væri að fara í slag­inn. „Og hún mun vinna, það er aug­ljóst. Hanna Birna er á stöð­ugu und­an­haldi en Ólöf í stór­sókn,“ segir hann.

Sjálf hefur Ólöf ein­ungis sagt að hún þurfi að gera upp við sig hvort hún sæk­ist eftir þing­sæti á ný. Ólöf var vara­for­maður á árunum 2010 til 2013 en hætti á Alþingi í síð­ustu kosn­ingum.

Á þriðju­dags­kvöld varð sá fáheyrði atburður að full­trúa­ráð sjálf­stæð­is­fé­lag­anna á Sel­tjarn­ar­nesi skor­aði á Ólöfu að gefa kost á sér. Þar er afdrátt­ar­laust lýst stuðn­ingi við ráð­herr­ann sem er utan þings. Tugir manna voru á fund­inum. Tillaga for­manns um áskorun á Ólöfu var ein­róma sam­þykkt.

„Fund­ur­inn hvet­ur Ólöfu Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra til að gefa kost á sér til emb­ætt­is vara­for­manns Sjálf­stæðis­flokks­ins á kom­andi lands­fundi. Ólöf hef­ur sýnt það í störf­um sín­um nú sem fyrr að hún býr yfir krafti, áræðni og reynslu til for­yst­u­starfa á veg­um Sjálf­stæðis­flokks­ins,“ seg­ir í álykt­un fund­ar­ins. Áður hafði Félag sjálf­stæð­is­manna í Lang­holts­hverfi sent frá sér sam­bæri­lega áskorun.

„Ólöf hef­ur sýnt og sannað að hún býr yfir krafti og áræðni til for­yst­u­starfa, hvort sem er á vett­vangi Sjálf­stæðis­flokks­ins eða lands­mál­anna,“ seg­ir í ályktun félags­ins. Tekið er eftir því að orða­lag stuðn­ings­yf­ir­lýs­ing­anna er nauða­líkt. Þá er þess að vænta að fleiri félög sjálf­stæð­is­manna taki af skarið og lýsi stuðn­ingi við inn­an­rík­is­ráð­herra. Í gras­rót flokks­ins er upp­reisn gegn Hönnu Birnu.

Þess utan hefur hópur for­ystu­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins á lands­byggð­inni gefið út stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu við fram­boð Ólafar. Þá yfir­lýs­ingu und­ir­rita fjöl­margir for­menn Sjálf­stæð­is­fé­laga svo sem Sölvi Sól­bergs­son á Bol­ung­ar­vík og Haf­dís Gunn­ars­dótt­ir á Ísafirði. „Án þess að á nokk­urn sé hallað telj­um við Ólöfu vera hæf­asta sjálf­stæð­is­mann­inn á land­inu öllu til að leiða flokk­inn, ásamt Bjarna Bene­dikts­syni for­manni,“ segir í yfir­lýs­ingu þeirra.

Þöglir þingmenn

Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa ekki viljað gefa opin­ber­lega upp afstöðu sína til fram­boðs Ólafar. Þó er talið að hún njóti mik­ils stuðn­ings. Guð­laugur 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórnin

FréttirRíkisstjórnin

Kristján Þór og Þor­steinn Már „nánir vinir“ í skiln­ingi stjórn­sýslu­laga

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hafa ekki viljað svara spurn­ingum um eðli vin­áttu sinnar. Samkvæmt hæf­is­reglum stjórn­sýslu­laga getur „náin vin­átta“ haft áhrif á hæfi ráð­herra og ann­arra opin­berra starfs­manna en í slíkri vin­áttu felst meðal ann­ars að menn umgang­ist í frí­tíma sínum.
Úttekt

Af hverju er spill­ing frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?

Munur á umræðu og aðgerðum stjórn­valda gegn spill­ingu í Svíþjóð og á Íslandi er hróp­lega mik­ill. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur á síð­ustu tveimur árum hafið rann­sókn á tveimur ráð­herrum vegna spill­ingar. Þessar rann­sóknir byggj­ast samt á veik­ari for­sendum en mörg mál sem komið hafa upp um íslenska ráð­herra á liðnum árum. Þá eru óform­legar reglur um spill­ingu og þol­in­mæði almenn­ings gagn­vart spill­ingu allt ann­ars konar á Íslandi en í Svíþjóð.

26 mín. lestur

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár