Bókajólin 2016: Bækur handa ólæsri þjóð?

Snæbjörn Brynjars­son rýnir í jóla­bóka­flóðið, helstu verkin sem eru að koma út og hverjir þykja lík­leg­astir til þess að fá bók­mennta­verð­launin.

Íslenska þjóðin getur kannski ekki lesið sér til gagns en hún kaupir bækur, vænt­an­lega ann­að­hvort til að þykj­ast lesa þær, gefa ein­hverjum sem henni er illa við eða nota sem stofustáss. Reyndar er þessi kenn­ing umdeild, sumir telja ólæsið mega rekja til þess að fólk sem vinnur við Mennta­mála­stofnun kunni ekki að skrifa þannig að læsi­legt sé. Í öllu falli koma út margar bækur miðað við höfða­tölu, 637 árið 2014, 656 árið 2015 og í ár 612. Ekki risa­vax­inn bóka­mark­aður og ekki margar þýð­ingar, en þó lif­andi þrátt fyrir að greiða hæsta virð­is­auka­skatt í Vestur-Evrópu (í flestum ríkjum Evrópu eru bækur skatt­frjálsar) og tak­mark­aðan kúnna­hóp.

Umrót á bókamarkaði

Stærstu tíð­indin á þessu ári voru að Jóhann Páll Valdi­mars­son seldi 42% hlut sinn í For­lag­inu. Forlagið er risi á mark­að­inum, enda með Mál og menn­ingu, Vöku Helga­fell, JPV, sem Jóhann Páll stofn­aði meðal ann­arra und­ir­for­laga. Þar er líka söluris­inn, Arnaldur Ind­riða­son, gef­inn út sem má segja að hafi með glæpa­sögum sínum auð­veldað fyr­ir­tæk­inu að taka áhættur á öðrum sviðum. Óvíst er þó hvort miklar breyt­ingar verði á for­lag­inu, það haldi áfram að vera í sömu fjöl­skyldu þar sem Egill Örn, sonur Jóhanns, keypti hlut­inn. Það marki þó viss tíma­mót þegar áhrifa­mesti útgef­andi Íslands dragi sig í hlé.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár