Bláberja-chutney

Sumarið er óvenju gott berja­sumar. Hægt er að nýta berin í fleira en sultur og saft, eins og blá­berja-chutney, sem Óskar Ericsson kennir okkur að gera.

Bláberja-chutney

 

Að baki er óvenju­gott sumar. Flesta daga fór hit­inn yfir 15 gráður og úti var sól og sæla, að minnsta kosti hér fyrir sunnan. Menn segja að það hafi ekk­ert með hlýnun jarðar að gera. Sumarið 1987 var víst líka svona gott, er sagt. En ég man ekki eftir öðru en að heilu sumrin hafi liðið þar sem ég fór ekki úr húsi án jakka. Satt að segja höndl­aði ég veðrið ekki vel. Þó að 15 gráðu hiti sé eins konar tákn­mynd fyrir íslenskt góð­ær­is­veður þá er þetta lúmsk tala. 15 gráður eru nefni­lega hvorki né. Veðrið er of heitt til að klæð­ast jakka en af og til kemur þessi kalda gola úr norð­an­átt sem minnir á að þú býrð á Íslandi. Fyrir vikið geng ég sveittur um allt sum­arið, með jakka í annarri hend­inni ef mér skyldi nú verða kalt, og reyni að líta ekki út fyrri að vera van­þakk­látur. Því ég við­ur­kenni fús­lega að það er arg­asta van­þakk­læti að kunna ekki að meta svona gott veður. En ég er ánægður með að sum­arið sé á enda og að allt falli aftur í sitt gamla far, þar sem stinn­ings­kaldi og hret ráða ríkjum – og allt meikar sens.

Hlýindin í sumar hafa einnig aðra merk­ingu, þau þýða líka að þetta er óvenju­gott berjaár. Víðast hvar á land­inu ber­ast fregnir af heilu hlíð­unum þar sem allt er krökkt af blá­berjum og rifs­berja­runnar í heima­högum svigna undan berjaklösum. Margir nýta sér góða veðrið og skella sér í berjamó og sulta fyrir árið. En þeir sem tína fleiri ber en þeir geta sultað geta líka skellt í úrvals chutney.

Chutney er bresk/ind­versk sulta sem er krydduð með fram­andi krydd­teg­undum, eins og kórí­ander, brodd­kúmen, kanil, kar­demommum og negul. Yfir­leytt er chutney borðað með karrýréttum eða enskum cheddar-osti auk þess sem það er ótrú­lega gott með kjöt­réttum eins og grill­uðum kjúkling eða svína­kjöti. Orðið chutney kemur frá ind­verska orð­inu chatni sem þýðir að sleikja, sem gefur til kynna að sult­urnar séu virki­lega bragð­góðar. Hefð­bundið chutney barst til Bret­lands frá Indlandi á 19. öld, þegar Indland var bresk nýlenda en er ólíkt alvöru ind­versku chutney, sem er ekki jafn sætt þar sem sinn­eps­olía er oft notuð í stað ediks.

Að búa til chutney er jafn auð­velt og að sulta. Eft­ir­far­andi upp­skrift er með blá­berjum en hægt er að nota alls kyns ávexti og ber til að búa til chutney. Eins er um að gera að prófa sig áfram með mis­mun­andi hrá­efni eins og rabar­bara, epli, perur, stikkils­ber eða döðlur.

Hráefni:

500 g blá­ber

150 g púð­ur­sykur

1 laukur, skor­inn í sneiðar

1 hvít­lauks­geiri, skor­inn smátt

125 ml gott edik (balsamic, epla­edik, lag­er­edik eða venju­legt)

Hnífs­oddur kanil, kór­eander, og brodd­kúmin

Klípa af salti

Aðferð:

Blandið sykri og ediki saman og hitið við vægan hita. Bætið lauk, hvít­lauk, kryddi og salti saman við og leyfið að malla í 10 mín­útur. Bætið blá­berj­unum við og leyfið að malla í 30 mín­útur í við­bót, eða þar til sultan er orðin vel þykk. Smakkið til  og geymið í hreinum krukkum. Lokið krukk­unum og snúið þeim á hvolf. Leyfið chutneyinu að kólna. Merkið með nafni og dag­setn­ingu. Chutney geym­ist að minnsta kosti fram að jólum í vel lok­uðum umbúðum, aft­ast í ísskápnum, og verður betra eftir því sem tím­inn líður.

Þeir sem borða sterkan mat geta bætt chili út í. Svo er hægt að prófa sig áfram með mis­mun­andi krydd­teg­undum eins og engi­fer, stjörnu­anis, túr­merik, reykta papriku og fenn­el­fræ.

Njótið vel!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár