Björt um Þorstein og Þorgerði: „Beinlínis á launaskrá við að sinna sérhagsmunum“

Björt Ólafs­dóttir, þing­kona Bjartrar fram­tíðar, skýtur fast á Þorstein Víglunds­son og Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur fram­bjóð­endur Við­reisnar. Hún segir Viðreisn hafa afritað stefnu­skrá Bjartrar fram­tíðar.

Björt um Þorstein og Þorgerði: „Beinlínis á launaskrá við að sinna sérhagsmunum“

Björt Ólafs­dóttir, þing­kona Bjartrar fram­tíðar, er harð­orð í garð fram­bjóð­enda Við­reisnar á Facebook-síðu sinni í dag. Hún segir mál­flutn­ing Þor­steins Víglunds­sonar, um að Björt fram­tíð hafi ekki barist fyrir almanna­hags­munum umfram sér­hags­muni fárán­legan. Þor­steinn hafi bein­línis verið á launa­skrá við að sinna sér­hags­munum, en hann hefur bæði verið fram­kvæmda­stjóri Samtaka álfyr­ir­tækja á Íslandi og Samtaka atvinnu­lífs­ins. Þá segir Björt annan fram­bjóð­anda, og á aug­ljós­lega við Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, nú þurfa að leggja lykkju á leið sína til þess að útskýra hvernig hún hefur ekki sinnt sínum sér­hags­munum umfram ann­arra „þegar hún sem ráð­herra sinnti mál­efnum Kaup­þings þar sem fjöl­skylda hennar fékk nið­ur­felld 2 millj­arða króna kúlu­lán. Hve oft vék hún af þing­flokks­fundum og af rík­i­s­tjórna­fundum þegar mál­efni Kaup­þings voru rædd?“ spyr Björt.

Björt seg­ist hingað til hafa setið á sér varð­andi Viðreisn þar sem ein­kunn­ar­orð Bjartrar fram­tíðar séu góð póli­tík. Hún full­yrðir að Viðreisn hafi afritað stefnu­skrá Bjartrar fram­tíðar og að það sé gleði­legt að fleiri legg­ist á árarnar við að koma mik­il­vægum málum og mik­il­vægri stefnu að. „Fólk í Bjartri fram­tíð hefur aldrei litið á sjálfa sig sem atvinnupóli­tíkusa eða flokk­inn sinn sem hags­munafl sem hverf­ist um okkur sjálf. Það eru mál­efnin sem skipta öllu,“ segir hún. 

Spyr hver fjármagni kosningabaráttu Viðreisnar

Forsagan er sú að í gær skrif­aði Þor­steinn á Facebook-síðu sína að hann hefði orðið var við að óprút­tnir keppni­nautar Við­reisnar gerðu til­raun til að stela ein­kenn­is­orðum þeirra. „Við því er það eitt að segja að fólki ber að var­ast lélegar eft­ir­lík­ingar, sama hversu bjartri fram­tíð er lofað,“ skrifar hann. 

Björt segir Þorstein vera með aðdrótt­anir um að Björt fram­tíð sé á ein­hvern hátt ekki ekta í helsta mark­miði þeirra sem sé að berj­ast fyrir almanna­hags­munum umfram sér­hags­muni.

„En það er þetta stef sem að Þor­steinn og félagar tifa nú á og telja sitt, og væna svo Bjarta fram­tíð um að herma,“ skrifar Björt. „Björt Framtíð var stofnuð árið 2012. Til þess að fjár­magna kosn­inga­bar­áttu okkar árið 2013 lagði þáver­andi for­maður flokks­ins hús fjöl­skyldu sinnar að veði, svo við hefðum fé til að prenta lág­marks bæk­linga og kynn­inga­efni. Þetta var okkar helsta kost­un­ar­leið. Við áttum ekki, og vildum ekki hafa stóra bak­hjarla með sína sér­hags­muni til að kosta okkar fram­boð,“ skrifar Björt. Þá segir hún Bjarta fram­tíð með­vitað hafa tekið ákvörðun um að taka ekki við pen­ingum frá lög­að­ilum. „Mér er spurn: Hver er það hjá Viðreisn sem að kostar öll flettiskiltin og aug­lýs­ing­arnar um almanna­hags­muni umfram sér­hags­muni?“ spyr hún meðal ann­ars. 

„Hver er það hjá Viðreisn sem að kostar öll flettiskiltin og aug­lýs­ing­arnar um almanna­hags­muni umfram sér­hags­muni?“

Björt segir að í máli eftir máli á þingi hafi Björt fram­tíð barist með almanna­hags­munum gegn sér­hags­munum. „Við höfum ekki keypt okkur inn á Alþingi með gylli­boðum um ókeypis pen­inga. Þannig börð­umst við á móti skulda­nið­ur­fell­ing­unni. Það eru alltaf skatt­greið­endur sem borga. Við börðum á móti búvöru­lög­unum og við berj­umst á móti skattaí­viln­unum sem hafa nær ein­göngu farið til álfyr­ir­tækj­anna,“ skrifar Björt. „Því er fárán­legt að heyra þennan mál­flutn­ing núna frá fram­bjóð­anda Við­reisnar sem að var bein­línis á launa­skrá við að sinna sér­hags­munum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
4
Innlent

Segir skerð­ingu Loft­brúar byggða á röngum for­sendum

Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir upp­haf­legar fjár­heim­ildir að raun­virði. Ekki séu heldur traustar vís­bend­ingar um að stuðn­ing­ur­inn hafi hækkað flug­far­gjöld. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hyggst nú hækka fyr­ir­hug­aða nið­ur­greiðslu eftir hörð við­brögð við breyt­ing­unum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár