Björk útskýrir fyrir þjóðinni hvað Sigmundur og Bjarni eru

Söng­konan Björk Guð­munds­dóttir útskýrir notkun hug­taks­ins „rednecks“ um Bjarna Bene­dikts­son og Sigmund Davíð Gunn­laugs­son. „Finnast þeir æðri nátt­úr­unni og að þeir eigi að stjórna henni“.

Björk útskýrir fyrir þjóðinni hvað Sigmundur og Bjarni eru

Björk Guð­munds­dóttir tón­list­ar­maður hefur sent frá sér ávarp til íslensku þjóð­ar­innar á Facebook, þar sem hún útskýrir notkun sína á orð­inu  „rednecks“ í við­tölum við erlenda fjöl­miðla, en þar vís­aði hún til Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra og Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra.

Hún er nýkomin úr sum­ar­bú­stað og missti því af umræð­unni um orð hennar, þar sem Jón Gunn­ars­son alþing­is­maður sagði meðal ann­ars að hún væri „dauf til augn­anna“. 

„Eru sann­færðir að þeir geti lifað án heild­ar­innar og oft hlynntir vopna­burði.“

„Mig langar aðeins að ræða þýð­ing­una á orð­inu „redneck“ í íslenskum fjöl­miðlum sem ég not­aði í við­tölum við Rolling stone, Sky news og fleiri í síð­ustu viku. Í mínum haus er þetta orð yfir fólk sem sér sinn þjóð­flokk betri en aðra. Eru sann­færðir að þeir geti lifað án heild­ar­innar og oft hlynntir vopna­burði. Finnast þeir æðri nátt­úr­unni og að þeir eigi að stjórna henni.
Fyrir mig hefur þetta orð aldrei tengst strjál­býli neitt endi­lega, redneks eru alls staðar í öllum löndum,“ skrifar hún.

Björk á Facebook
Björk á Facebook Í Facebook-færslu sinni ávarpar hún þjóð­ina.

Í íslenskum frétta­miðlum var orðið „redneck“ þýtt sem sveitalubbar. Birkir Jón Jónsson, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Kópavogi, kvart­aði meðal ann­ars undan orð­notkun Bjarkar.

„Bænd­ur hafa um ár­hund­ruð verið gæslu­menn lands­ins. Ég þekki ekki meiri nátt­úru­vernd­arsinna, fólk sem elsk­ar landið sitt og ber hag þess fyr­ir brjósti. Fólk úr sveit hef­ur oft verið kallað sveitalubb­ar af fólki sem finnst þau hall­æris­leg. Ég er stolt­ur sveitalubbi!“ skrif­aði Birkir Jón.

Björk segir hins vegar að „rednecks“ fyr­ir­finn­ist ekki ein­ungis í sveitum. „Fyrir mig hefur þetta orð aldrei tengst strjál­býli neitt endi­lega, rednecks eru alls staðar í öllum löndum og bara svo það sé alveg á hreinu: Ég elska af öllu hjarta Ísland og sér­stak­lega nátt­úr­una og strjál­býlið.“

Björk var að ræða vernd hálend­is­ins í við­tali við Sky news þegar hún lét orðin falla. „Meira en 80% Íslend­inga finnst að hálendið eigi að vera ósnert og vilja þjóð­garð. Það er minni­hluti „redneck“ stjórn­mála­manna sem vilja eyða hálend­inu - sér­stak­lega for­sæt­is­ráð­herr­ann og fjár­mála­ráð­herr­ann.“

 

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár