Báðir stjórnarflokkarnir lofuðu lyklafrumvarpi – ákváðu að efna ekki loforðið

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn lof­uðu að bjarga skuld­settum heim­ilum frá gjald­þroti með svoköll­uðum lykla­lögum en hættu við að efna lof­orðið. Um leið fjölg­aði upp­kveðnum gjald­þrota­úr­skurðum ein­stak­linga og fjöldi fólks á van­skila­skrá náði hámarki í upp­hafi kjör­tíma­bils­ins.

Báðir stjórnarflokkarnir lofuðu lyklafrumvarpi – ákváðu að efna ekki loforðið

Rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins efndi ekki lof­orð um svo­kallað lykla­frum­varp sem báðir flokkar gáfu kjós­endum í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga. Hug­myndin á bak við slíkt frum­varp er að hjálpa skuld­urum að forð­ast gjald­þrot með því að gefa þeim kost á skila yfir­skuld­settri fast­eign gegn því að skuldir sem á henni hvíla séu felldar niður. Báðir núver­andi stjórn­ar­flokkar töl­uðu ein­dregið fyrir slíkri lög­gjöf í aðdrag­anda síð­ustu þing­kosn­inga.

Í stefnu­skrá Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir þing­kosn­ing­arnar 2013 var að finna eft­ir­far­andi fyr­ir­heit:

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn gaf sams konar lof­orð í bæk­lingi sem dreift var í aðdrag­anda kosn­ing­anna:

Illugi Gunn­ars­son, þáver­andi þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem síðar varð mennta­mála­ráð­herra, skrif­aði um mik­il­vægi lykla­laga í Morg­un­blaðið árið 2012:

„Eitt af því sem ég tel að við getum gert er að leiða í lög hug­myndir okkar Sjálf­stæð­is­manna um svo­kallað lykla­frum­varp. Með því fengi skuld­ari þann rétt að geta skilað hús­næði sínu og fengið þar með allar þær skuldir sem á henni hvíla felldar niður. Fyrir þá sem eiga ekk­ert í hús­næði sínu og geta ekki staðið í skilum myndu slík lög breyta samn­ings­stöð­unni við fjár­mála­stofn­anir.“

Óli Björn Kárason, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og núver­andi þing­fram­bjóð­andi, lagði einnig áherslu á að sett yrðu lykla­lög í grein sem birt­ist eftir hann í Morg­un­blað­inu tveimur vikum fyrir kosn­ingar. „Samn­ings­staða þeirra sem berj­ast við óyf­ir­stíg­an­legar skuldir gjör­breyt­ist gagn­vart lána­stofn­unum ef „lykla­lög“ verða sett eins og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn telur nauð­syn­legt,“ skrif­aði Óli Björn og rakti fleiri stefnu­mál Sjálf­stæð­is­flokks­ins. „Kjós­endur þurfa ekki að spyrja sig hvenær hægt verður að hrinda hug­myndum Sjálf­stæð­is­flokks­ins í fram­kvæmd. Svarið er; strax á fyrstu vikum nýrrar rík­is­stjórnar, fái sjálf­stæð­is­menn til þess þing­styrk. Fyrir fjöl­skyld­urnar eru til­lög­urnar ekki líkt og fuglar í skógi – þær geta verið í hendi í lok kjör­dags.“

„Svarið er; strax á fyrstu vikum
nýrrar rík­is­stjórnar“

Eftir að rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins hafði verið mynduð og stjórn­ar­sátt­máli lá fyrir full­yrti Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son í stefnu­ræðu sinni þann 2. októ­ber 2013 að frum­varpið yrði lagt fram strax á sum­ar­þing­inu. Horfið var frá þeim áformum. 

Réttarfarsnefnd gerði athugasemdir

Þann 27. febr­úar 2015 greindi Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra frá því á Alþingi að ekk­ert lykla­frum­varp væri í smíðum í ráðu­neyt­inu.

Helgi Hjörvar, þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, tjáði sig um málið á þing­inu 2. mars og sagði: „Bæði Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn lof­uðu kjós­endum sínum lykla­frum­varpi. Hvernig gátu tveir stjórn­mála­flokkar, sem höfðu eitt og sama kosn­inga­lof­orðið í þessu efni, myndað rík­is­stjórn til fjög­urra ára án þess að það yrði sam­eig­in­leg nið­ur­staða þeirra að efna lof­orðið um lykla­frum­varp?“

Sig­mundur Davíð svar­aði á þá leið að rétt­ar­fars­nefnd hefði gert athuga­semdir við til­lögur að lykla­lög­gjöf sem lagt var upp með og talið að þær stæð­ust ekki stjórn­ar­skrá. Fyrir vikið hefði þurft að leita ann­arra leiða til að hjálpa skuld­urum sem ættu yfir höfði sér gjald­þrot. 

Lyklafrumvarpi Pírata fálega tekið

Píratar gripu til þess ráðs þann 2. mars 2016 að leggja sjálf fram lykla­frum­varp á Alþingi. Birgitta Jóns­dótt­ir, Helgi Hrafn Gunn­ars­son og Sig­ur­björg Erla Eg­ils­dótt­ir vara­þing­kona lögðu til að lögum um samn­ings­veð nr. 75/1997 yrði breytt með þeim hætti að við 19. gr. lag­anna bætt­ist ný máls­grein, svohljóð­andi:

Lán­veit­andi, sem í atvinnu­skyni veitir ein­stak­lingi lán til kaupa á fast­eign sem ætluð er til búsetu og tekur veð í eign­inni til trygg­ingar end­ur­greiðslu láns­ins, getur ekki leitað fulln­ustu kröfu sinnar í öðrum verð­mætum veð­sala en veð­inu. Krafa lán­veit­anda á hendur lán­taka skal falla niður þegar lán­veit­andi hefur gengið að veð­inu, enda þótt and­virði þess við nauð­ung­ar­sölu dugi ekki til greiðslu upp­haf­legu kröf­unnar. Óheimilt er að semja á annan veg en greinir í ákvæði þessu.

Frum­varpið var tekið til umræðu á Alþingi 9. mars. Einungis Birgitta hélt ræðu en engir stjórn­ar­liðar tjáði sig. Málið dag­aði svo uppi í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd. 

Fjöldi einstaklinga á vanskilaskrá náði hámarki

Fjöld­i ein­stak­linga á van­skila­skrá náði hámarki í upp­hafi þess kjör­tíma­bils sem nú er að ljúka, en í nóv­em­ber árið 2013 voru 28.140 manns á skránni sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Credit Info. Síðan hefur fækkað á skránni og var fjöld­inn 24.417 í lok sept­em­ber á þessu ári.

Samkvæmt nýj­ustu árs­skýrslu dóm­stóla­ráðs sem fáan­leg er á vefnum (hún var gefin út í fyrra og tekur til árs­ins 2014) fjölg­aði upp­kveðnum gjald­þrota­úr­skurðum ein­stak­linga úr 369 á árinu 2013 upp í 540 á árinu 2014.

Samkvæmt riti Seðla­bank­ans, Fjár­mála­stöð­ug­leika sem kom út þann 12. októ­ber síð­ast­lið­inn, hefur hlut­fall útlána ein­stak­linga í van­efndum eða fryst­ingu hjá stóru við­skipta­bönk­unum og Íbúða­lána­sjóði lækkað und­an­farna mán­uði og í lok sept­em­ber var fjöldi ein­stak­linga á van­skila­skrá 24.417. Þá voru ein­stak­lingar með skráð gjald­þrot og árang­urs­laust fjár­nám 6.365 tals­ins í lok sept­em­ber og hefur fækkað um 2% frá ára­mótum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
4
Innlent

Segir skerð­ingu Loft­brúar byggða á röngum for­sendum

Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir upp­haf­legar fjár­heim­ildir að raun­virði. Ekki séu heldur traustar vís­bend­ingar um að stuðn­ing­ur­inn hafi hækkað flug­far­gjöld. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hyggst nú hækka fyr­ir­hug­aða nið­ur­greiðslu eftir hörð við­brögð við breyt­ing­unum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár